miðvikudagur, mars 19, 2008

Gott er að fá gesti....

Mmmmmmm....rauðvín, geitaostur, aspas, trufflur, panna cotta, espresso.....þetta getur aðeins þýtt eitt; Margrét er í heimókn og nautnaseggurinn er í hávegum hafður. Veitingastaðir, kaffihús og verslanir af ýmsum toga í öndvegi. Doktorsnámsstress, króna í frjálsu falli, bumbuvöxtur og öðru leiðindastöffi er lítill gaumur gefinn. Og New York er alveg pleisið til að gera sér glaðan dag.