mánudagur, desember 26, 2005

Gleðileg jól og leyndóinu uppljóstrað

Liebe folkens. Vonandi hafið þið haft það gott um hátíðirnar og ekki étið eins yfir ykkur og ég. Með þessu áframhaldi verð ég alveg einn af þessum 20-something ungu mönnum sem hafa verið grannir allt sitt líf og skyndilega tútna út á alla kanta.
Jafnframt tel ég óhætt að greina loks frá þessu: daddararara á veraldarvefnum þó nokkuð sé síðan að fjölmiðlar opinberuðu þetta og sannarlega hef ég ekkert verið þögull sem gröfin í góðra vina hópi enda stigmagnast spennan dag frá degi. Stöð 2 12. janúar gott fólk.
Læt þetta nægja að sinni.
El Maestro

miðvikudagur, desember 21, 2005

JÓLIN KOMA !!! (já alveg rétt)

Jólaundirbúningur, jólatilhlökkun, jólastress, jólagleði, jólaskap....þetta eru mjög framandi orð þar sem allt jóla- er langt frá því að vera mér efst í huga um þessar mundir. Samt ku vera einungis 3 dagar til jóla. Ég á semsagt eftir að kaupa allar jólagjafir, taka til í herberginu mínu, taka þá síðbúnu ákvörðun að jólakortin verða engin, aðstoða við jólaskreytingar og jólamatargerð á síðustu stundu o.s.f.v. Ástæðan er einföld: ég er kennari. Og kennarar fá ekkert jólafrí. Sérstaklega ekki þegar það þarf að fara yfir meir en 100 verkefni - flest hver hátt í 20 bls a.m.k og sum nær 100 bls (og svo nokkur styttri). Þá eru ótalin 70 próf sem ég þarf að fara yfir milli jóla og nýárs. Ofan á þetta brjálæði bætast við umsóknir til erlendra háskóla sem ég er að reyna að sjóða saman fyrir deadline-ið sem er eftir viku auk þess sem hinn litli frítími sem ég hef haft hefur farið í kóræfingar eða undirbúning fyrir ************** (ritskoðað af Stöð 2)sem hefur verið allt of lítill en sem betur fer var stóru stundinni nú frestað þar til eftir áramót.
Ég legg ekki meira á mig. Og ekki er það til að bæta ástandið að ég er svo mikill B-maður að mér tekst ekki að fara fram úr rúminu fyrr en í fyrsta lagi kl 9 þó verkefnin bíði í hrönnum.
Que horror !!
Eins gott að einhver bjóði mér í partý þegar þessu öllu er lokið.

fimmtudagur, desember 15, 2005

Haiku

Guð gaf mér eyra
þó að ég hlusti aldrei
heyri ég alltaf

Maður á hjóli
les sig gegnum malbikið
lifandi eimreið

Stúlkan varð kona
málaði á sér augun
slökkti svo ljósið

Það er góð skemmtun og æfing að yrkja haiku hvort sem maður er eins háfleygur og ég núna (enda klukkan að verða eitt að kveldi) eður ei. Ék skora á sambloggara mína að prófa. Kannski verður þetta svona keðjufyrirbæri eins og klukkið og allt hitt :P

miðvikudagur, desember 14, 2005

Hégómi

Ef ég fer í klippingu í dag mun ég vera boðlegur fyrir sjónvarpið eftir 3 vikur ?

sunnudagur, desember 11, 2005

Concerti

Jæja kominn tími á blogg. Líkt og síðasta helgi var þessi helgi sem nú er að líða mikil tónleikahelgi. Í þetta skiptið var ég þó í hlutverki tónleikagestsins. Í gærkvöldi fór ég á magnaða tónleika Antony & The Johnsons í Fríkirkjunni. Þvílík söngrödd ! Maður fékk gæsahúð ítrekað. Stemmingin var einnig einstaklega góð þó að hitinn í kirkjunni væri næstum óbærilegur.
Í dag hlýddi ég svo á Jólaóratóríu Bachs í Hallgrímskirkju í flutningi Schola Cantorum og alþjóðlegrar barrokkhljómsveitar auk einsöngvara. Var það prýðilegur flutningur á flottu verki og góð skemmtun í allra staði. Svo má þess geta að ég og samferðafólk mitt hélt hálfgerða einkatónleika á Ölstofunni í gær en eftir nokkra bjóra var hvert Bítlalagið tekið á fætur öðru ásamt nokkrum klassískum kórlögum. Voru undirtektir nærstaddra að ég held bara góðar þó erfitt sé að meta það á raunsæjan hátt. Eitt er víst að stuðið var til staðar.
Svo viðurkenni ég fúslega að í gærdag glápti ég á Miss World meðan ég gerði heiðarlega tilraun til að taka til í herbergi mínu. Þegar ljóst var í hvað stefndi vék þó tiltekt fyrir mikilli spennu enda er maður jafn slæmur og flestir Íslendingar þegar kemur að hinum og þessum sigrum á alþjóðasviði og fylltist ég einlægu stolti þegar kórónunni var komið fyrir á höfði Unnar Birnu hvað svo sem manni finnst á annað borð um svona fegurðarsamkeppnir.

föstudagur, desember 02, 2005

Hlæhlæhlæ

Forsíða DV er nú oft spaugileg en forsíða blaðsins í dag slær allt út í fyndni. Aðalfyrisögnin er hreinlega dásamleg.