þriðjudagur, ágúst 26, 2003

Meðmæli vikunnar !

Tónlist: The Coral er aldeilis skemmtilegt band frá Liverpool sem vert er að mæla með. Hafa vakið mikla athygli með óvenjulegum en skemmtilegum og dálítið gamaldags hljóm. Hafa heldur betur slegið í gegn í Bretlandi og víðar. Búnir að gefa út tvær plötur þar af eina glóðvolga.

Sjónvarpsefni: Eins og þeir vita vel sem mig þekkja er ég forfallinn aðdáandi frjálsra íþrótta í sjónvarpi þó ég hafi aldrei komið nálægt hlaupabraut hvað þá stökkgryfju eða kasthring. Ástæðuna má rekja til óþreytandi áhuga míns á landafræði á yngri árum með áherslu á þjóðlönd og fána. Ég heillaðist því af Ólympíuleikum og heimsmeistarakeppnum og einhverra hluta vegna urðu frjálsar mest í uppáhaldi, eflaust vegna fjölbreytninnar. En til að gera langa sögu enn lengri þá mæli ég sterklega með HM í frjálsum sem ryður sér rúm á ljósvakanum um þessar mundir. RÚV sýnir helstu viðburði en þeir sem eru svo heppnir að eiga eurosport geta fylgst enn betur vel og öfunda ég þá mjög.

Fæða: Ís. Ís er góður. Mæli sérstaklega með ísnum í Úlfarsfelli í Vesturbænum og fyrir þá sem leggja leið sína (eða búa) á Norðurlandi þá vek ég athygli á hinni frægu Brynjuísbúð á Akureyri sem ég einmitt heimsótti um helgina.

Land: Filippseyjar til heiðurs því ágæta fólki í Hamrahlíðarkórnum sem fer þangað í vikunni. Sorglegt en satt þá verð ég ekki með í för þar sem ég taldi eina Asíuför á ári nægjanlega. Ég held að buddan sé sammála því og ljóst er að Thailandsförin verður seint ef einhvern tímann toppuð. En góða ferð kæra söngfólk og ég bið ykkur að passa ykkur á að vera ekki sprengd í loft upp eða tekin höndum af mannræningjum og seld í ánauð eða fá malaríu og beinbrunasótt eins og ég margóttaðist í minni ferð ferðalöngum mínum til mikillar skemmtunar !

Spil: Rúsínupóker er allra meina bót og gleður andann bæði til sjávar og sveita (einkum til sveita þó !)
Hugsa sér nýbyrjaður að blogga og strax er fólk farið að gráta fjarveru mína af þeim vettvangi. Svona er maður ómissandi ! Nei án gríns er gaman að vita að einhverjir gefa sér tíma og nennu í að skoða þessa blessuðu síðu og held ég því ótrauður áfram. Annars er ég tiltölulega nýkominn úr 6 daga dvöl á Norðurlandi og hef nú skoðað plöntur meira en flestir teldu hollt en hafði bara gaman af. Á morgun hefst svo skólinn af fullum krafti og ekkert nema gott um það að segja...........er Andrés andlausi núna og þó ég blóðmjólki heilasellurnar hef ég ekkert sniðugt að segja.

sunnudagur, ágúst 17, 2003

Linkurinn á þetta annars ágæta geektest er hér.
Var e-ð um 7% nörd skv. the geektest. Verð að viðurkenna að það kom mér á ?óvart hversu lágur nördastuðull minn er ekki síst ef lesinn er næsti póstur fyrir neðan hér á síðunni. Ástæðan er sennilega sú að samkvæmt einhverjum óskilgreindum reglum eða stöðlum er varða nörda á alþjóðavettvangi þá virðist tölvukunnátta og lestur vísinda- og ævintýraskáldsagna sem og áhugi á sviði eðlisfræði og efnafræði vera það sem einna mest einkennir nörda þessa heims. Ég get þá ekki annað en glaðst yfir þessum tíðindum og að líffræði og þar með talið greiningar á gróðri séu langt í frá nördaleg fræði heldur þvert á móti aðdáunarverð og áhugaverð og svei mér þá jafnvel töff eða kúl...ég gæti mín þó á að gera mér engar óraunhæfar grillur en fagna almennri sátt og virðingu fyrir því sem ég taldi vera nördalegan áhuga a t.d. byggingu karl- og kvenkynkerfis snarrótarpunts og annarra grasa a ótöldu geldæxlunarsprotum blávinguls eða blómskipan skammkrækils. Ég ber höfuðið hátt því ég er ekki nörd (nema 7 %).
Jæja þá er maður kominn aftur í bæinn eftir ágætis ferð á Snæfellsnes þar sem grös voru greind og ber étin milli þess sem arkað var um holt og mýrar ýmist í sól og blíðu eða slagviðri eins og sönnu íslensku veðri sæmir. En ekki er maður enn sloppinn úr stálkrumlu gróðurgreiningar því nú tekur við 6 daga reisa um Norðurland með enn meiri plöntuskoðun. Svona gerist þegar maður er ekki eins og fólk er flest. Þótt mörg séu áhugamál mannsins þá hlýtur þessi grasagreiningaráhugi að vera eilítið brenglaður og ef til vill tilefni fyrir læknisfræðilegar athuganir. Eða hvað ? Ég hef algerlega enga skýringu á þessu. Ætli ég hafi ekki bara skotist út úr móðurkviði með grasagreiningarlykil hangandi í naflastrengnum eða kannski var ég Carlus Linnaeus A.k.a Carl von Linne í fyrra lífi. ( Þeir skilja sem skilja !!!). En svona standa málin og að þessarri nafla(strengs)skoðun lokinni tel ég ekki ástæðu að tíunda þetta frekar því ef eitthvað er meira boring en grasagreiningar (að almenningsáliti a.m.k) er það áhugamaður um grasagreiningar að velta því fyrir sér af hverju hann er áhugamaður um grasagreiningar.

miðvikudagur, ágúst 13, 2003

Meðmæli vikunnar !

Geisladiskur: De-loused in the comatorium með The Mars Volta. Kraftmikið og grípandi rokk sem kemur á óvart.

Kvikmynd: Secretary. Svört kómedía um hvernig sadómasó í vinnunni getur leitt til hamingjusamlegra endaloka.

Fæða: Íþróttasúrmjólk með vanillubragði. Gefur súrmjólkurheiminum nýjar víddir. Prófið með Special K. Unaður.

Dægradvöl: Bloggskoðun. Margt skemmtilegt á netinu. Ótrúlegt hvað fólki dettur í hug. Ekki gott fyrir mjóhrygginn þó !
Jæja, síðan er orðin allframbærileg held ég bara. Er nokkuð stoltur og ánægður með hvað það var lítið mál að setja þetta upp. Það verður hins vegar lítið um að vera fyrstu dagana þar sem fram undan er alls herjar grasaupplifun vítt og breitt um landið næstu 10 daga eða svo með smá pásu. Kvart dagsins þó frekar deprimerandi sé gaf mér þá hugmynd að það gæti verið sniðugt að hafa svona þemu sem birtast vikulega eða oftar/sjaldnar. Kannski skell ég upp einhverju núna rétt á eftir !!
Kvart dagsins

Spurning um að hafa þetta svona daglegt þema á síðunni. Ætti ekki að vera í minnstu vandræðum með það ! En allavega þá klæjar mig óstjórnlega í augað og gæti ég best trúað því að ég sé með þann sjúkdóm sem heitir því skemmtilega nafni vogris og er víst einhver sýking sem viðhelst ef maður klórar sér í auganu. Jæja, sýkingunni er þá vel haldið við á þessum bæ því ég er meira eða minna með puttann í auganu allan daginn, nuddandi eins og óður maður og er allur rauður og þrútinn fyrir vikið. Stuð.

þriðjudagur, ágúst 12, 2003

Jæja þá hefur maður hafið innreið sína á alþjóðavefinn. Með hjartað í buxunum og sveitta lófa. Er enn að velta því fyrir mér hvort þetta hafi verið rétt ákvörðun. Tilfinningin er soldið eins og að vera með opna buxnaklauf. Þigg reynslusögur annarra með fegins hendi.
ehm...bara að prófa !! feiminn svona til að byrja með