þriðjudagur, júlí 20, 2004

Athugið gott fólk !
 
Er mættur í höfuðborgina og verð til viðtals á morgun en er svo farinn að finna minn innri flóðhest.
Kveðja Snorri.
 
P.S. Ef enginn vill hitta mig á morgun verð ég afar sár og kem ekki heim aftur heldur stofna búgarð fyrir bitra Vesturlandabúa á miðri savannagresjunni.

föstudagur, júlí 16, 2004

Hakuna matata...
 
Þessa dagana tala ég Swahili enda mun ég brátt verða meðal Masaimanna og annarra keníska þjóðflokka. Hér kemur smá sýnishorn:
 
Jambo ! Jina lango ni Snorri. Nataka kushuka hapa. Punda milia wapi ?
 
Lausleg þýðing:
Halló ! Ég heiti Snorri. Ég vil fara héðan. Hvar er sebrahestur ?
 
Ég hef semsagt ekkert að gera í vinnunni en það er bara hið besta mál enda er ég latur að eðlisfari. Í fréttum er það helst að ég át svínakótilettur í hádegismat og fór í klippingu í gær á hárgreiðslustofunni Kúnst á Sauðárkrók sem er alls ekki neitt krummaskuð eins og sumir halda. Hér blómstrar menningin og m.a. fór ég á frábæra tónleika í gær með Ragnheiði Gröndal á Kaffi Krók. Hún er svo sannarlega efnileg jazzsöngkona..þrælflott program og góð stemming meðal Krókverja..........Summertime. When the living is easy !
 
 

þriðjudagur, júlí 13, 2004

Landsbyggðin mælir...

Fátt er tíðinda héðan af Hólum. Hef ekki enn misst vitið og geri það tæplega héðan af. Fór á ball með Stuðmönnum þar sem ölvun var mikil eins og búast mátti við. Fékk góða heimsókn á föstudaginn þegar Rósa nokkur renndi við með fríðu föruneyti á leiðinni í útileigu. Eftir rúma viku verð ég komin til Kenýa og er það með ólíkindum........nenni ekki að segja neitt í bili, maður verður svo nægjusamur hér á landsbyggðini að allt málþóf er óþarfi.