Ljótur heimurJá kominn tími til að blogga.
Það er óneitanlega margt ólíkt við að lifa á gamla klakanum með hinum 290.000 hræðunum eða búa í 60 milljón íbúa þjóð eins og Bretlandi. Eitt sem hefur slegið mig þónokkuð (er ég fylgist með fréttum) er hinn gríðarlegi fjöldi morða og annarra hryllilegra ofbeldisglæpa hér á landi. Það er a.m.k 1 óhugnanlegt morð, nauðgun eða ofbeldisárás sem á sér stað í hverri viku eins og sjá má á forsíðum dagblaða og vefsíðna. Um daginn var ung kona sem var á gangi með barnungan son sinn í kerru fyrir fólskulegri og tilefnislegri árás ókunnugs manns. Hann stakk hana einu sinni í hálsinn og hljóp svo burt. Ástæðan er ókunn, ekki rændi hann neinu af henni né átti sér nein kynferðisleg misnotkun sér stað. Konan fannst liggjandi í blóði sínu með soninn felmtri sleginn við hlið hennar. Hún lifði árásina af en er lömuð frá hálsi. Þessi atburður átti sér stað í örsmáu þorpi í Suður-Englandi fjarri öllum skuggastrætum stóru borgana og vakti mikinn hrylling.
Nýjasti skelfingaratburðurinn átti sér stað í vikunni er tveimur unglingsstúlkum var rænt þar sem þær stóðu fyrir framan pöbb. Þær voru neyddar upp í bíl og keyrðar í hús þar sem þeim var nauðgað og misþyrmt klukkutímum saman. Önnur var svo stungin til bana en hin skotin í höfuðið. Voru þær svo skildar eftir á víðavangi víðsfjarri þeim stað er þær voru brottnumdar á. Sú sem var skotin lifði af þótt ótrúlegt sé og gat sagt frá atburðinum og lýst árasarmönnunum og hafa nú þegar handtökur farið fram og voru þetta menn um tvítugt sem áttu í hlut.
Báðir þessir atburðir eru svo hræðilegir að engin orð fá því lýst og ekki hægt að ímynda sér hryllinginn sem fórnarlömbin hafa gengið í gegn um.
Maður er því þakklátur fyrir þær góðu stundir sem maður hefur upplifað í lífinu og að lítilfjörleg vandamál eins og próflestur og skítug eldhús séu það eina erfiða sem maður þarf að díla við !
Góðar stundir