mánudagur, október 31, 2005

Síðkvöldsöppdeit

Já allt að gerast. Þótt ég þurfi að vakna kl 7 í fyrramálið er ég enn glaðvakandi. Eftir að hafa klárað tvo fyrirlestra fyrir morgundaginn æstist ég í að skrúfa saman IKEA-geisladiskahillu fyrir hálftíma síðan. Helgin hefur farið í kórpartý og afmæli og messusöng samhliða dýrafræðilestri og powerpoint-show gerð. Parentið fór til Costa Rica á föstudaginn bölvuð og tókst fyrir miskilning að taka linsurnar mínar með sem og eina gemsahleðslutækið á heimilinu. Frábært !
Jæja, í bólið !

mánudagur, október 24, 2005

Airwaves....vúhú !!

Þrususkemmtileg helgi afstaðin ! Fyrir utan GRE sem var ógeð og verður ekki frekar rætt um hér :(
Mitt fyrsta Airwaves-upplifelsi (sökum útlandadvala eða peningaleysis) var með eindæmum frábært þrátt fyrir þá súru staðreynd að ég missti af helmingnum þ.e. fyrstu tveimur kvöldunum vegna veikinda. En seinni kvöldin tvö (sem voru hvort eð er aðalkvöldin) bættu upp fyrir það. Ég tók þann pól í hæðina að vera ekkert að flakka á milli og halda mig bara á Nasa því þar voru hljómsveitirnar sem ég var mest spenntur fyrir. The Zutons hef ég séð áður, Juliette var ekki að höfða til mín og Fiery Furnaces varð ég bara að fórna. Ég sé ekki eftir því ! Með því að mæta snemma (um 9 leytið) bæði kvöldin slapp ég alveg við raðir sem gerðu mörgum erfitt fyrir og ollu vonbrigðum og leiðindum. Stemmningin á Nasa var engu lík og mér fannst nú aldrei vera það troðið þótt maður vissi af fimmföldum röðum í kringum Dómkirkjuna eða álíka. Þeir hefðu nú alveg mátt hleypa aðeins fleiri inn held ég. Greinilega þarf að endurskoða skipulagið á þessari hátíð !
Föstudagur: Megastemming á Nasa. Au Revoir Simone voru svona lala en ég var að fíla Metronomy. Lo-Fi-Fnk ollu pínku vonbrigðum en dugðu samt til að mynda stuð sem náði hámarki er Architecture in Helsinki steig á svið. Þau voru sérlega mögnuð, annar af hápunktum hjá mér og ábyggilega fleirum. Sleppti Hjálmum og fór heim enda GRE-viðbjóðurinn morguninn eftir.
Laugardagur: Mætti beint í Worm is Green sem eru alltílæi, Bang Gang voru flott og troðningurinn við sviðið mikill. Það losnaði töluvert um hann þegar Zoot Woman stigu á svið og fannst mér merkilegt að vita af röð dauðans um það leyti. Kannski voru allir á barnum eða á klósettinu ? Þeir voru skemmtilegir en kannski pínku hversdagslegir. Clap Your Hands Say Yeah komu næst með allt öðruvísi tón en annars einkenndi Nasa um helgina. Hrátt Indie-rokk af bestu gerð. Hápunktur kvöldsins var samt Ratatat. Elektró-gítara kraftsólóin slógu í gegn hjá áhorfendum og stuðið náði algleymingi. Þá var klukkan orðin 2 og Gus Gus létu aðeins bíða eftir sér en þau stóðu fyrir sínu og héldu uppi rokna dansstuði. Ég var orðinn farlama í mjóbaki á þeim tímapunkti enda búinn að standa nær stanslaust í 7 tíma (9-4) og gat því ekki dansað mikið þótt ég vildi (stundaði í staðinn hið klassíska dill og höfuðhnykk sem einkennir kyrrstöðufólk á stuðtónleikum). Glápti á þau drjúga stund þar sem ég hef ekki séð þau áður (ótrúlegt en satt), beið eftir að þau spiluðu David og fór svo þreyttur en himinlifandi heim.
OG svo eru White Stripes að koma eftir nokkrar vikur !! Allamalla myndi amma segja. Eins gott að ná sér í miða á það.

föstudagur, október 21, 2005

GRE um GRE frá GRE til GRE

Ég er að verða geðbilaður að læra fyrir GRE. GRE er viðbjóður, það er ógeð, það er gamalt gubb marinerað í aldraðri ælu. Hahaha þarna var um samheiti að ræða en því miður þarf ég ekki að kunna samheiti heldur eingöngu andheiti og það á fáránlegustu orðum sem til eru. Orð sem finnast eingöngu í Websters Dictionary og það risastóru útgáfunni. Enska er ógeðslegasta og fáránlegasta tungumál sem til er. Hver veit eða vill vita hvað orð eins og incorrigible, amalgamate, meretricious, antediluvian, abstemious, internecine og pusillanimous þýða ??
Ekki ég. En aumingja ég þarf samt að vita hvað svona orð þýða til að geta eitthvað í þessu ljóta prófi.
Einn,tveir og BÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖ.
Oh, well á morgun eftir hádegi verður þetta búið og gert og engin ástæða til að velta sér meira upp úr því. Ég ætla líka að taka upp gleði mína á nýjan leik þar sem ég er loksins orðinn hress og missi ekki af seinni hlutanum á Airwaves.
Jæja best að læra nokkur fleiri orð. Stuna.

fimmtudagur, október 20, 2005

Væl og meira væl

Jú, ég reyndist sannspár, því miður. Ég er semsagt veikur heima, smitaðist af þessari magapest. Ég slapp nú frekar billega samt því engar voru uppsölurnar og tókst mér meira að segja að kenna uppi í Háskóla í gær þrátt fyrir magapínu sem ég tengdi aðallega við stress. Þegar beinverkirnir og hitinn mættu seinnipartinn var hins vegar ljóst hvert stefni. Ég held ég sé hitalaus núna en máttleysið er mikið. Ég er feginn að þetta brast ekki á fyrr en eftir að kennslunni í gær var lokið. Hins vegar er súrt að missa af fyrsta (og mjög sennilega öðru líka) kvöldinu á Airwaves. Ég sem var búinn að hlakka svo mikið til enda um mitt fyrsta Airwaves að ræða. Vonandi verð ég bara orðinn eldhress á morgun því það eru fyrst og fremst föstudags- og laugardagskvöldin sem ég er spenntastur fyrir. Þannig að það var kannski lán í óláni að ég veiktist í gær en ekki t.d. á morgun. Þá hefði líka GRE-prófið farið til fjandans sem hefði verið vesen aldarinnar. Jæja, best að leggja sig á nýjan leik.

mánudagur, október 17, 2005

Allt að verða vitlaust

Þessi vika sem er að hefjast er rosaleg ! Það er svo mikið á dagskrá að ég veit ekki í hvorn fótinn ég á að stíga. Á miðvikudaginn held ég minn fyrsta fyrirlestur í Dýrafræði A við Háskóla Íslands fyrir framan 80 manns ! Ég er að farast úr stressi og af eftirtöldu sem gæti gerst megið þið velja um hvað væri vandræðalegast:
Á miðvikudaginn í sal 4 í Háskólabíó mun ég:
a) pissa á mig
b) þurfa að hlaupa út til að gubba
c) falla í öngvit
d) vera í svitakófi með bletti undir höndum og rautt andlit
e) segja aulabrandara og það má heyra saumnál detta í salnum
Eníveis. Síðan er Iceland Airwaves að bresta á sem er auðvitað hið besta mál enda með eindæmum spennandi. Þannig að 4 kvöld í röð mun ég njóta góðs af því en það er líka töluverð keyrsla. Því miður mun ég ekki geta notið þess til fulls því á laugardagsmorgun fer ég í hið hræðilega GRE próf sem er bæði ógeðslega erfitt og hundleiðinlega langt. Það er vitaskuld eldsnemma um morguninn þannig að ég þarf að fara snemma heim af Airwaves á föstudagskvöldið. Einnig er það á kóræfingartíma hjá Mótettunni og ekki nóg með það heldur er aðalfundur kórsins þá líka. Ég verð bara að mæta of seint sem er ekki sérlega gott því það er búið að plata mig í stjórn og gettið í hvaða embætti. Jú, ritari gerist ég á nýjan leik. Veit ekki hvort ég mun komast upp með að vera eins gagnslaus og ég var sem ritari Haxa.
Svo býst ég allteins við því að þetta fari allt til fjandans því ælupest hefur barið að dyrum hér í famílíunni og er fátt líklegra en að ég leggist í þann viðbjóð þegar ég minnst þarf á slíku að halda !

mánudagur, október 10, 2005

Af andfúlum kennurum.

Þeir sem hafa setið lengi á skólabekk hafa án efa hitt margan kennarann og oft á tíðum hefur það vakið athygli hversu ógurlegur fnykur berst úr munni þeirra er þeir aðstoða mann með dæmi eða útskýra viðtengingarhátt, mítósu, núningskraft, dróttkvæði etc. Það virðist vera einhvers konar fylgni milli kennara og andfýlu sem ætíð hefur vakið furðu. Yfirleitt er andfýla fremur persónubundin og tengist tannhirðu, mataræði, kaffidrykkju, reykingum, ástandi hálskirtla, meltingarvegs o.s.f.v. Og þótt kennarar reyki margir, drekki langflestir of mikið kaffi, éti gjarnan bragðmikinn mat (því þeir hafa ekki tíma til að vera bóhem á öðrum sviðum en hugsanlega í eldhúsinu) og hafi án efa alls konar meltingar- og hálskvilla enda gjarnan undir miklu álagi þá er samt ótrúlegt að andfýlan skuli vera svo viðvarandi hjá þeim frekar en öðrum.

En nú hef ég verið kennari í rúman mánuð og þykist vita svarið við leyndardómnum. Þegar kennari kennir talar hann mikið. Stundum jafnvel nonstopp í einhverja klukkutíma. Við allt þetta tal dregst mjög úr munnvatnsframleiðslu og á sér stað mikil munnþornun. Við þessa munnþornun opnast mjög fyrir alla lykt- og bragðlosandi staði svo sem háls, kok, tennur og góm þannig að vont bragð myndast í munni sem gjarnan leiðir til vondrar lyktar og þar með hefur myndast ægileg andfýla. Ekki bætir að kennsla er mjög þreytandi og orkukræf þannig að hungur sverfur gjarnan að er langt er liðið á kennslu sem ýtir frekar undir ástandið. Þetta hef ég upplifað mér til mikillar skelfingar og ef tyggjó er ekki við höndina (sem það ætti alltaf að vera sem og vatn til drykkjar svo munnur haldist rakur) þá er ekki annað til ráða en að halda vissri fjarlægð og reyna að vísa tali frá viðmælendum (tala á ská) ef þeir nálgast mann (t.d. vegna sérerinda eftir tímann þegar andfýluhættan er sem mest). Því hvað er hræðilegra en að vera stimplaður sem einhver sóði og andfýlukjaftur. Ógn og skelfing !!

laugardagur, október 01, 2005

Í óspurðum fréttum !

1. Ég er að fara að drekka bjór á eftir jafnvel þó bumban fari eigi minnkandi sökum óbeitar minnar á hreyfingu. Hvað á ég að gera ?? Arrrrg.
2. Á pening í fyrsta sinn í eilífð í dag sem er ekki lán eða yfirdráttur. Enda er ég aðjúnkt :P
3. Verslaði því Snorraleg föt í Spútník. Allt blátt að vanda og íhaldssamt. Ég ætti eiginlega að vera Sjálfstæðismaður !
4. Er farinn að spá í framhaldið þ.e.a.s. framhald lífsins á næsta ári. Hugsa að ég sækji um doktor í Chicago og kannski New York. 5 ár í USA er samt svolítið rosalegt ! Einnig langar mig að dvelja í mánuð á Spáni næsta sumar og verða betri í spænsku.
5. www.last.fm er ótrúlega skemmtilegt, ekki síst útvarpsstöðvarnar sem hægt er að búa til.
6. Parentið er að fara til Costa Rica eftir rúmar 3 vikur bölvuð og skilja mig eftir með hús, ketti og kennslu. Ég ætti eiginlega að halda brjálað partý til að hefna mín.
7. Hver vill fara með mér í bíó á Kvikmyndahátíð ??