Meistarinn mælirJæja gott fólk, komið þið nú sæl á ný eftir langa fjarveru. Þetta er Meistarinn sem talar og þá er ég ekki að vísa í margnefndan sjónvarpsþátt heldur þá staðreynd að nú hef ég loksins útskrifast með pompi og prakt sem Meistari í Fornlíffræði (M.Sc in Palaeobiology). Er það ástæðan fyrir því að ég yfirgaf land og þjóð í viku og dvaldi á Englandi. Síðastliðinn Þriðjudag er flestir Bretar voru að tapa sér yfir Valentínusardagsdagskrárundirbúningi (þ.e.a.s. fyrir utan þá ólánsömu sem eru á lausu !!) tók ég við formlegu útskriftarskjali klæddur svörtum og vínrauðum kufli með afar síðum ermum. Var það hinn kostulegasti klæðnaður. Því miður var myndavél mín batteríslaus þannig að ég er háður framlögum að utan ef ég hyggst sýna ljósmyndir af vettvangi.
Dvölin í Bretlandi var að öllu leyti ljúf. Fyrri hlutinn samanstóð af 4 daga dvöl í London ásamt Brynju frænku þar sem margt var gert sér til skemmtunar, mest þó verslað og etið. Ég hef aldrei keypt svona mikið af fötum á stuttum tíma. Það var bara e-ð svo einfalt, og þau pössuðu meira að segja á mig sem er ekki alltaf gefið. Að sjálfsögðu fór margur þúsundkallinn í kaup á geisladiskum einnig en þeir eru einhvers staðar á bilinu 25-30 talsins. Já það er eins gott að vera vinnandi maður til að þola slík útgjöld. Einnig var British Museum heimsótt í stutta stund. Enn styttri voru heimsóknirnar á Science Museum og Natural History Museum. Ollu biðraðir, krakkalýður og almennt öngþveiti með tilheyrandi streituvaldandi hávaða því að við þurftum frá að hverfa. Auk þess var Íslandssýningin á Science Museum lokuð þannig að við sáum ekki þau herlegheit (merkilegt hvað maður hefur alltaf mikinn áhuga á því sem tengist eigin þjóð). Hins vegar var mannmergðin á Goldfrapp-tónleikunum í Brixton Academy einungis til að auka stemmninguna enn frekar á frábærum tónleikum. Sjitt..hvað Allison Goldfrapp er mikil gella. Rrrrraaaoooawwr. Og danspíurnar voru þvílíkt flottar í þröngum en geðveikt kúl búningum. Mega stuð.
Seinni hlutinn fór svo í (dýr en notaleg) ferðalög í lestum til og frá Bristol þar sem ég dvaldi í þrjár nætur, útskrifaðist og átti góðar stundir með mínum bresku vinum/skólafélögum þar sem m.a. var lagður grunnurinn að Íslandsheimsókn þeirra í sumar. Vonandi verður af því og þá neyðist ég til að finna og elda svið handa þeim þó ekki sé sviðaseason um mitt sumar, en svona heilluð/sjokkeruð eru þau yfir þessum þjóðardiski.
Jæja, læt staðar numið enda dælan búin að ganga lengi vel.