föstudagur, október 29, 2004

9 lestir á 1 sólarhring !

Já hef heldur betur verið á ferðinni. Skrapp til London í orðsins fyllstu merkingu. Mætti beint á Franz Ferdinand tónleika í Brixton Academy í gærkvöldi og hitti þar Ólöfu og co. Gisti svo hjá henni og Helga í fínu íbúðinni þeirra í Hammersmith og hélt svo eldsnemma aftur til Bristol. Það var orðið dimmt þegar ég kom til London og það var ennþá dimmt er ég yfirgaf pleisið.
Alls 3 lestir og 4 neðanjarðarlestir og 3 lestarstöðvar og 5 neðanjarðarlestarstöðvar.
Jessörríbob. Mætti svo í morgun beint í næstu lest ásamt skólafélögum og var förinni heitið til Cardiff í Wales þar sem dvalið var aðeins of lengi á náttúrugripasafninu og steingervingar skoðaðir bæði opinberlega og "bak við tjöldin" í geymslunni í kjallaranum ! Síðan var aðeins gengið um bæinn sem var bara verí næs og haldið heim á leið í lest sem var ekki alveg að gera góða hluti enda 2 tíma að fara 45 mín leið og var oftar kyrrstæð en á ferð. Var gripið til þess ráð að lesa um appelsínuhúð og svitabletti og tíðni þeirra á misfrægu fólki en slíka vitneskju má finna á síðum fréttaritanna Heat og OK. Var það mikið stuð og ekki var krossgátan í OK síðri þar sem allir lögðu hönd á plóginn við að giska á gælunöfn aðalkarakteranna í Hollyoaks og Coronation Street og öðrum virtum breskum sápum. Þegar heim var loksins komið var það sameiginleg ákvörðun allra að kebab væri málið og ekki í fyrsta og örruglega ekki síðasta sinn. Um helgina verða svo feltferðir á dagskránni og hefur okkur verið úthlutað hjálmum og neongulum vestum svo við séum örugglega eins hlægileg tilsýndar og mögulegt er.

þriðjudagur, október 26, 2004

Unaðslegur viðbjóður...

Lenti óvart á skralli í gærkvöldi og var því ekki sá hressasti í morgun. Gat ekki sinnt lönguninni í feitt og sveitt fyrr en nú rétt í þessu. Skellti mér á Diamond Kebab og fékk mér vænan Döner. Ekki lét ég þar við sitja heldur tæmdi hálfan lítersdall af Ben & Jerrys. Er ég viss um að það muni koma mér í koll síðar í kvöld með hugsanlegri kveisu. En það var vel þess virði. Breyttist einfaldlega í Hómer er hann fór til helvítis og át kleinuhringi....more, more, more, more, more, more, more.....

fimmtudagur, október 21, 2004

Eftir miðnætti (á breskum tíma)...

Sit stjarfur (eða ligg ölluheldur) fyrir framan tölvuskjáinn. Gafst upp á 60 bls grein um Conodonta..þeir sem vita hvað Conodontar eru fá svert pik í kladdann..fyrir hina fáfróðu get ég sagt að þeir eru skyldir langalangalangalangalanga x skrilljónafa okkar sem synti í sjónum, var langur og mjór, með stór augu og hvassar tennur. Og þetta var fyrir tíð fiskanna. Vá, augun eru að límast saman af syfju. Kom annars heim (til Bristol) í dag eftir dýrindis Edinborgarreisu þar sem Margrét tók vel á móti mér líkt og ég væri konungborinn (sem ég er náttúrulega..það bara veit það enginn). Edinborg sjálf var hins vegar e-ð mishress með komu mína og hristi fram úr erminni rok og rigningu og fimbulkulda. Engu að síður var ekki annað hægt en að heillast af þessari stórkostlegu borg. Jæja ég er að fara úr axlarlið hérna í þessum töluðu...góða nótt y'all !

þriðjudagur, október 19, 2004

Edinborg !!!

Farinn til Edinborgar að hitta atferlisfræðinemann Margréti a.k.a. Gretchen - ljóskuna á kantinum !! Það verður stuð.
See ya !


sunnudagur, október 17, 2004

Nýjir tenglar !

Þar sem ég þykist vera tónlistaráhugamaður setti ég tengla inn til að deila því með ykkur hvað ég hlusta á. Undir "Á fóninum" má sjá hvað ég er að hlusta á hverju sinni meðan "Geisladiskasíðan" sýnir hið fábreytta en óðum vaxandi geisladiskasafn mitt. Tenglarnir eru hér til hægri undir "Tenglar" ...haha skemmtileg tilviljun !
Sniðugar síður á vegum http://www.audioscrobbler.com og http://rateyourmusic.com. Mæli með þeim fyrir þá sem hafa gaman af listum og að flokka hluti...og tónlist að sjálfsögðu !

laugardagur, október 16, 2004

Nývaknaður

Ahhh..12 tíma svefn að baki. Það er ef til vill einum of mikið af því góða. Draumarnir voru allavega orðnir mjög súrealískir undir lokin. Meðal annars var ég hluti af einhverri ægilegri tilraun og var ofan í fiskibúri og einhver brjálaður fiskur (sem reyndist svo vera smækkaður háhyrningur) var að bíta mig í upphandlegginn og allir vísindamennirnir í kring voru geðveikt stressaðir. Fyrr um nóttina var ég Andrés Önd að sleppa úr höndum glæpamanna sem höfðu haldið mér föngum um borð í snekkju. Svo þegar ég var kominn nógu langt í burtu til að teljast hólpinn áttaði ég mig á með skelfingu að Ripp, Rapp og Rupp voru enn um borð í snekkjunni.
Hmmmm..einhverjir draumráðningamenn þarna úti ?

fimmtudagur, október 14, 2004

Lexía dagsins !

Bjór á miðvikudegi veldur vindgangi og þembu á fimmtudegi.

sunnudagur, október 10, 2004

Annar í hálsbólgu...

Jamm það er nefnilega svo mikið svoleiðis. Föstudagurinn var mjög dramatískur. Vaknaði með vit og kok full af sýklum að halda haustfagnað. Var því frekar óhress og átti bágt í skólanum sem var bæði langur og erfiður þann daginn. Ég þurfti meðal annars að halda fyrirlestur (my first real english presentation) með tilheyrandi Powerpointi, stami og paniksvimasvitakófum. Það gekk nú samt furðu þolanlega en reyndi svo á minn máttfarna líkama að ég lagðist í kör það sem eftir var dags. Fékk einnig að vita að tilburðir mínir á sviði sönglistar væru ekki taldir merkilegir í Bretaveldi þar sem mér var hafnað inngöngu í the Madrigal Ensemble. Var svona smá stúrinn yfir því þótt ég ætti ekki von á öðru. Æ þetta hefði nú sennilega hvort eð er verið of aristókratískt m.a.s. fyrir mig sem hef nú oft dreymt um að spássera sem hirðmaður í glæstum höllum með hárkollu og staf, drekkandi púrtvín úr gylltum glösum og segjandi setningar eins og "come hither thy maiden of distinguished properties, will thou not redeem thyself by enjoying my subtle yet nourishingly delightful company ?".....anyways, gærdagurinn var því nýttur í að sofa úr sér slappelsið og gæta þess að reyna sem minnst á sig og mögulegt var. Í dag er ég öllu hressari og hef meðal annars gengið um ótroðnar (af mér) slóðir hér í borg, fengið mér heitt súkkúlaði og fussað og sveijað yfir ofbjóðandi dýru verði á eins ómerkilegum fatnaði og hettupeysum (69pund !!) í tískuverslunum. En nú ætla ég að fá mér beyglu með rjómaosti því ég er orðinn svo mikill Ameríkani því þeir eru áberandi mest kammó af fólkinu sem býr hér á þessum internatjónal görðum. Segjum þetta gott !

PS ef e-r svo ólíklega vildi senda mér póstkort eða gamaldags sendibréf þá er heimilisfangið mitt eftirfarandi:

Deans Court Flat 66B
3 St Georges Road
Bristol BS1 5UL
UK

t.d. styttist í atburði eins og afmæli ..hóst hóst

miðvikudagur, október 06, 2004

Tvöfalt líf Snorra !

Fyndið, það varð eitthvað klúður með að publisha síðustu færslu þannig að ég hélt að ég þyrfti að gera hana aftur sem og ég gerði en svo virðist fyrri færslan hafa komist í gegn eftir allt saman. Það eru því tvær mismunandi útgáfur á þessari frásögn minni. Áhugamenn um ólík stílform og málvenjur geta því skemmt sér að bera þær saman og jafnvel gert greinargóða úttekt á því ef viljinn er fyrir hendi :)
Hetjudáðir drýgðar !

Ég er mjög stoltur af mér þessa stundina því ég var rétt í þessu að koma úr ægilegu inntökuprófi í the Madrigal Ensemble sem er voða fancy kór hér við skólann. Ég skráði mig meira svona í gamni en þegar ég mætti á svæðið var ljóst að um mikla alvöru var að ræða og umsækjendurnir flestir mjög hæfileikaríkir. Ég fékk nett panik er ég áttaði mig á þessu en lét ekki deigann síga og held að ég hafi staðið mig ágætlega en efast þó stórlega að ég komist inn svo mikil var samkeppnin. Það merkilega er að strákarnir voru sterkari en stelpurnar að því að mér sýndist og voru álíka margir og þær þar að auki. Það verður spennandi að sjá hvernig fer.
Í gær gerðist ég líka svo djarfur að fara einn á rokktónleika og reyndist það leikur einn og ég skemmti mér afar vel. Bandið (The Zutons) var mjög skemmtilegt og lifandi og stemmingin var hreint frábær og létu Bretarnir öllum illum látum upp við sviðið og sungu með af innlifun.
Svo í dag fékk ég í hendurnar nýju gleraugun mín og þar sem þau eru allt öðruvísi en þau sem ég bar áður var það viss hetjudáð út af fyrir sig. Ég átti erfitt með að horfa í spegil til að byrja með en held að þetta verði í lagi eftir vissan aðlögunartíma.
Þannig að ég er bara nokkuð góður með mig þessa stundina !!
Hetjan Snorri !

Mér finnst ég eiga heiður skilinn fyrir það sem ég hef afrekað síðasta sólarhringinn. Í gær fór ég t.d. einn á rokktónleika sem var dálítið sérstakt. Ég skemmti mér samt mjög vel því bæði var bandið (The Zutons) mjög skemmtilegt og einnig var stemmingin alveg heint frábær. Bretarnir sungu með af innlifun og létu öllum illum látum. Þetta lofaði góðu fyrir komandi tónleikaferðir mínar sem munu verða þónokkrar ef ég þekki mig rétt ( m.a. 4 framundan núna fyrir jól..Franz Ferdinand, Zero 7, Jill Scott og Interpol).
Í dag fékk ég einnig í hendurnar nýju gleraugun mín sem eru allt öðruvísi en þau sem ég bar áður. Mér fannst mjög erfitt að horfa í spegilinn til að byrja með þar sem ókunnugt andlit horfir á mann til baka. Ég sé samt ekki eftir neinu og hyggst bera þau stoltur.
Mesta hetjudáðin var þó sú sem ég hef nýlokið við en það var að fara í inntökupróf í The Madrigal Ensemble sem er einhver voða fancy skólakór. Ég skráði mig meira svona í gamni en þegar ég mætti á svæðið var ljóst að hér var um fulla alvöru að ræða og mikið um hæfileikaríkt fólk. Ég fékk nett panik er mér var ljóst hversu ramman reip var við að draga en gerði mitt besta og þó að prófið hafi í sjálfu sér ekkert gengið illa verð ég mjög hissa ef ég kemst inn svo mikil var samkeppnin. Það merkilega var að það voru strákarnir sem virtust öruggastir meðan stelpurnar voru svona meira upp og ofan. Það verður spennandi að sjá hvað gerist en ég er allavega stoltur af mér að hafa reynt.

mánudagur, október 04, 2004

Myndir !

Í sinni stuttu heimsókn tók mamma nokkrar myndir sem eru nú til sýnis á netinu. Þar geta þeir ,sem ekki þola að vera án minnar guðdómlegu ásjónu, sótt í athvarf, þar sem ég birtist á einni eða tveimur myndum. Annars eru þær flestar af Bristol, því miður ekki kannski beint allar af fallegustu hlutum borgarinnar en sýna ágætlega mitt daglega umhverfi. Vonandi koma fleiri myndir einhvern tímann síðar.
Já vel á minnst...myndirnar eru HÉR !!!

föstudagur, október 01, 2004

Allsber afmæliskveðja !

Fyrr í kvöld átti sér stað mjög fyndin sena hér á alþjóðlegu framhaldsnemagörðunum sem ég bý á. Ein stúlkan sem býr í sömu íbúð og ég og er frá Taiwan á víst afmæli í dag og sökum þess hringdu e-r vinir hennar í mig og vildu fá mig til að syngja með þeim afmælissönginn. Ég samþykkti það en þegar þau mættu á svæðið var ljóst að meira var fólgið í mínu hlutverki en gefið var upp í fyrstu. Var ég semsagt vinsamlegast beðinn um að banka á hurðina hjá afmælisbarninu og óska henni til hamingju með afmælið. Þóttust vinir hennar vita að hún myndi verða mjög hvumsa við það...síðan ætluðu þau að koma hoppandi fram af fyrirfram ákveðnum felustað með köku og hvaðeina. Semsagt mjög svo týpiskt afmælissörpræs með mig sem einhvers konar kómiskt innlegg í dæmið. En ég semsagt barði að dyrum hjá stúlkunni en enginn svaraði. Ég þóttist þó heyra í vatnsnið í fjarska og áætlaði sem svo að hún væri í sturtu. Vinirnir gáfu sig þó ekki og báðu mig um að reyna aftur eftir 10 mín meðan þau myndu bíða í launsátri inni í eldhúsi. Eftir 10 mín reyndi ég aftur og eins og mig hafði grunað var greyið stúlkan nýstigin úr sturtu og rétt svo stakk höfðinu út um rifuna og var greinilega ekki í miklu meira en handklæði auk þess sem andlit hennar var þakið grænum maska. Ég stóð þarna eins og auli og eftir að hafa beðist afsökunar á trufluninni kláraði mitt hlutverk og óskaði henni til hamingju með afmælið og vinirnir spruttu þá fram á rétta kjúinu syngjandi "Happy birthday" með mikilli innlifun. Þegar þau áttuðu sig á stöðu mála átti sér stað mikið fliss og strákarnir sem með í för voru sukku nær niður í gólfteppið og var þetta allt hið vandræðalegasta. Eftir nokkra skræki brá afmælisbarnið sér frá og skellti sér í kimono slopp og blés á afmæliskertið en fékk svo leyfi til að klæða sig og afmaska andlitið áður en frekari skemmtanahöld héldu áfram. Yfir kökunni var ég svo tekinn í yfirheyrslu og fræddi ég liðið meðal annars um sviðahausa, ævintýri mín á vespum í Thailandi og um hvers vegna fólk af mongólska kynstofninum þolir verr áfengi en aðrir (en um það höfðu þau aldrei heyrt um fyrr ) eftir að hafa viðurkennt að geta þolað neyslu á töluverðu áfengi án þess að verða eldrauður í framan og fá svima.
Móðir mín í vindsæng

Mútter kom hingað í gær og fór í dag á leið sinni heim frá Berlín. Það var mjög gott að fá hana í heimsókn enda bauð hún mér út að borða og borgaði fyrir mig slatta af skólabókunum :) Í tilefni af komu hennar var keypt vindsæng ein mikil í Woolworths sem var blásin upp inni í mínu litla herbergi með miklum látum enda fylgdi með henni rafmagnspumpa ein allrosaleg. Vindsæng þessi ( sem ég að sjálfsögðu svaf á ) er hinn besti gripur og er það breið að tveir geta vel rúmast á henni, þó ekki mjög fyrirferðarmikið fólk eða hávaxið. Að sjálfsögðu getum við mæðgin ekki verið saman í útlöndum án þess að lenda í einhverju stress-skenario og í þetta sinn ætlaði mamma að taka leigubíl út á rútustöð en þá sagðist hann ekki geta komið fyrr en eftir 20 mín sem var um svipað leyti og rútan var að fara. Við þurftum því að hlaupa á rútustöðina með mjög óstýriláta og þunga tösku með í för sem var á vægast sagt lélegum hjólum. Rétt náðum við þangað í tæka tíð og þá þurfti ég að hlaupa til baka því ég var orðinn of seinn í skólann.
Skólinn er semsagt að bresta á í næstu viku með miklu afli og þarf ég til dæmis strax að halda fyrirlestur næsta föstudag sem gildir 50% af lokaeinkunn þess kúrs. Mun sá fyrirlestur fjalla um fiðraðar risaeðlur !
Þannig að það er bara Lærdómur Löve......