Rosavondómató
Biðst afsökunar á bloggskorti. Orsök má rekja til streituvaldandi þátttöku í sjónvarpsþætti. Ekki orð um það meir. Ég reyndi að blogga í gærkveldi en þá lá Blogger niðri. Í gær bauð ég Tinnu út að borða sökum ríkisdæmis míns en það fór ekki betur en svo að við enduðum á Rossopomodoro og fengum afskaplega vondan mat. Pizzurnar voru vondar og desertarnir gamlir. Við reyndum samt að vera jákvæð og hrósuðum pepsi-inu í hástert. Við kenndum Indian Mango um því einhverra hluta vegna er lokað þar í janúar og neyddumst við þess vegna að leita á önnur mið með fyrrnefndum afleiðingum.
Nú sit ég hér geispandi í vinnunni og reyni að koma einhverju í verk.
Annars er það helst í fréttum að ég dreif mig loksins í leikfimi. Keypti kort í Laugum sem mér líkar enn sem komið er mjög vel við, nóg pláss og lítil svitafýla. Er því hér með hafið hið mikla missjón: Snorrenegger 2006 !