miðvikudagur, október 31, 2007

Okurland

Einstaka sinnum rifjast upp fyrir manni tetta eina sem er serstaklega slaemt vid tad ad bua a Islandi og ta getur madur gladst yfir tvi ad vera annars stadar. Var semsagt ad skoda i fyrsta sinn hina frabaeru okursidu Dr. Gunna : http://this.is/drgunni/okur

laugardagur, október 20, 2007

Ekki með öllu horfinn...

Jæja, síðasta færsla var ekkert kjaftæði því framtaksleysið hefur einnig sett lit sinn á blogg þetta. Ég skulda svo sannarlega færslu !
Síðan ég skrifaði seinast ber það helst til tíðinda að fyrsta vikan í október var einstaklega skemmtileg því þá dvöldu afar góðir gestir hér hjá mér í viku. Það voru stóra systir og Alfa vinkona okkar. Þær fylltu litlu íbúðarkytruna mína miklu lífi, hressleika og umstangi sem virkaði sem vítamínsprauta fyrir New York búann. Einnig fylltu þær íbúðina með innkaupapokum enda athöfnin að versla ætíð vinsæl er borg þessi er heimsótt. Ég reyndar stóð mig ekkert síður í kaupunum sem var auðvitað mjög skemmtilegt þótt buddan hefði mátt hækka í viðvörunarbjöllunum. Peningastatus er semsagt frekar rýr þessa dagana, það hefur gengið hratt á alla sjóði. En næstu mánaðamót fæ ég bæði styrkgreiðslu auk launa í fyrsta skipti þannig að þá batnar ástandið.
Það var óneitanlega erfitt að horfa á eftir gestunum þegar þær fóru og sitja einn eftir á nýjan leik. Enda lagðist ég í kör með kvef og hita og eyddi næstu dögum að mestu leyti í rúminu í eymd og volæði eins og mér einum er lagið. Þjáist ég enn af hori en er annars orðinn hress og löngu farinn á fætur.
Veðrið hér í New York heldur áfram að vera stórfurðulegt. Fyrsta vikan í október var svakalega heit, eins og sumar á Spáni. Stelpurnar áttu síður en svo von á slíkum hita og svita. Það var þó óneitanlega gaman að geta setið úti á kvöldin og hápunkturinn var að upplifa algera útihátiðarstemmingu á stórtónleikum Arcade Fira á Randalls Island. Það var magnað kvöld og veðurblíðan hafði þar mikið að segja. Um það leyti sem þær fóru snarlækkaði hitastigið, örugglega um 15 gráður og skyndilega varð mjög kalt. Það gæti haft eitthvað að segja um lasleikann hjá mér. En nú er aftur farið að hitna og þótt það sé að koma nóvember getur maður verið úti á stuttermabol á daginn og á kvöldin er þunn bómullarpeysa meira en nóg. Þetta er óneitanlega skrítið !
Ég er orðinn alger sjónvarpsfíkill og á ég ekki einu sinni sjónvarp !!! Þannig er nefnilega mál með vexti að maður getur horft á nær alla sjónvarpsþætti beint á netinu án þess að þurfa að hlaða þeim niður á undan. Ég er farinn að glápa á alls konar þætti allt frá dramasápum til spæjaragrínþátta auk standarda eins og Heroes, Survivor og Ugly Betty. Ef ég get mælt með einhverjum góðum þáttum þá eru 30 Rock með fyndnari þáttum í amerísku sjónvarpi þessa dagana, Pushing Daisies er ný sería sem er þrælskemmtileg, svona Big Fish eða Amelie fílingur. Svo eru Friday Night Lights afar vel gerðir þættir, þeir eru sýndir á Skjá Einum heima held ég. Svo handa aðdáendum amerískra unglingasápa þar sem leikarar eru með eindæmum fallegir og miklu eldri en persónurnar sem þær leika, þá er nýja serían Gossip Girl tilvalin fyrir ykkur. Hún gerist í New York og er skömmustulega djúsí þótt hún risti auðvitað grunnt og sé ein gangandi klisja.
Meðan ég sit og skrifa þetta eru allir heima á Airwaves. Ég er afar öfundsjúkur !! Ekki að ég geti ekki farið á tónleika því hér er sko meira en nóg og ég búinn að vera mjöööög duglegur að fara. En stemmingin á Airwaves er svo einstök, og leiðinlegt að missa af því þetta árið (og næstu væntanlega !!). Góða skemmtun í kvöld !!!