fimmtudagur, september 29, 2005

Líf kennarans

Ég er gjörsamlega uppgefinn eftir að hafa haldið fyrirlestur í morgunsárið. Það tekur þvílíkt úr manni að tala nær stanslaust í 1 og hálfan tíma, ekki síst þegar maður er að útskýra erfiða hluti. Heilinn þarf svo sannarlega að vinna og það hratt. Síðan bíða manns endalaus fleiri verkefni.
Ég hef alltaf borið mikla virðingu fyrir kennarastarfinu og verið meðvitaður um hversu mikil og oft á tíðum erfið vinna það er. En það er ekki fyrr en maður prófar það sjálfur að vera kennari sem maður almennilega áttar sig á umfanginu og álaginu. ÚFF !! Ég hrósa nú bara happi að vera þó að kenna fullorðnu fólki og ekki þurfa að eiga við óþekka krakkagrislinga í ofanálag. Það er ekkert grín þegar talað er um að kennarastarfið sé vanþakklátt starf miðað við lágu launin sem fást fyrir svo krefjandi vinnu.

miðvikudagur, september 21, 2005

Eitt stykki klukk

Já Gógó klukkaði mig víst. Verð því að tjá fimm staðreyndir um sjálfan mig. Hmmmmmm...
1. Ég er latur maður. Sérstaklega þegar um leiðinlega hluti eins og tiltekt og að taka upp úr ferðatöskum er að ræða. Að ógleymdri líkamsrækt.
2. Mér finnst veruleikasjónvarp skemmtilegt sem er að sumu leyti sorglegt. Ekki allt þó, fyrst og fremst spennandi þættir eins og Survivor eða Amazing Race. Þoli ekki Makeover þætti, hvort sem um fólk eða hús er að ræða.
3. Mér finnst mjólkurfroðan ofan á góðu cappuchino dásamleg.
4. Ég kaupi allt of marga geisladiska miðað við efnahag.
5. Þegar ég er einn heima læt ég stundum eins og fífl, syng og dansa, les upphátt upp úr bókum og tala við sjálfan mig. Bæld sköpunargleði að brjótast út vænti ég. Eða léttklikkun !

Þar hafið þið það. Nú getið þið gert grín, hneyklast eða hrist höfuðið. En sum ykkar verða að líta í egin barm því ég klukka Tinnu, Ólöfu, Margréti, Bryndísi og Freydísi.

Annars er þetta klukk hálf asnalegt. En ég ætla ekki að vera neikvæður (er búinn að því samt)
Röfl, röfl, röfl.
Bless.

laugardagur, september 17, 2005

Hæ hó

Langt síðan ég bloggaði síðast. Sit hér einn heima í myrkrinu með ótrúlega mikið uppvask og eldhúsdrasl fyrir aftan mig sem ég neyðist til að takast á við á eftir áður en parentið kemur heim. Fúsi litli frændi sefur uppi. Það þurfti bæði Þyrnirósu, Litla ljóta andarungann (sem ég kann engan veginn nógu vel) og hinar ýmsu hundakúnstir til að fá hann til að sofna. Litla skinnið, hann er alger snillingur. Við horfðum saman á Honey I Shrunk the Kids sem ég hef ekki séð í háa herrans tíð. Einnig átum við hamborgara og drukkum epladjús.
Ég var rétt í þessu að panta mér slatta af diskum á Amazon :P Það er nú einu sinni komið nýtt kortatímabil og ég átti auðvelt með að réttlæta það því ég fór í Kringluna í dag að leita að fötum og keypti ekkert því mér blöskraði verðið svo gríðarlega. Ég neita að kaupa bol eða skyrtu fyrir 11.000. Kommer ikke til grene.
Þá má þess geta að ég fór út að skokka í dag. Hahahaha. Það var nú sjón að sjá. Var nær dauða en lífi eftir korter og hélt ég myndi ekki hafa það inn í húsið.
Í gær kenndi ég tvo fyrirlestra í röð í Kennó og það snemma um morguninn. Annar var m.a.s. á ensku. Geri aðrir betur. Enda var ég uppgefinn það sem eftir var dags og ekkert varð úr djammi um kvöldið sökum þreytu. Mér sýnist stefna í sömu leti í kvöld nema e-ð óvænt komi upp á.
Line-upið á Iceland Airwaves er orðið mjög gott. Ratatat, Architecture in Helsinki, Zoot Woman, Union of Knives, Clap your hands say yeah og Au Revoir Simone hljóma mjög spennandi. Svo eru Fiery Furnaces örugglega mjög góð og Babyshambles gætu verið sjón að sjá. Mörg skandinavísku böndin virka líka áhugaverð. Fyrir utan öll frábæru íslensku böndin sem ég þekki því miður of illa. Ætla tvímælalaust að kaupa mér miða í næstu viku. Eina slæma er að í sömu viku og Airwaves verður byrja ég að kenna í HÍ sem er eintóm ógn og skelfing. Ekki nóg með það fer ég í GRE á laugardagsmorgninum í þeirri sömu viku. Frekar glatað en víst ekki hægt að hætta við það. Neyðist víst til að rifja upp menntóstærðfræðina sem er löngu týnd og tröllum gefin.
Jæja, uppvaskið bíður. Set Röyksopp á fóninn til að stytta mér stundir.
Ble.

sunnudagur, september 11, 2005

Innipúkinn

Jamm gott fólk hef vart farið út úr húsi um helgina. Bara glápt á tennis og þóst undirbúa kennslu. Á morgun hefst nýtt tímabil með tilheyrandi skokktilraunum og annarri vitleysu til að vinna bug á bumbu. Bumban var samt í heiðursæti á föstudagskvöldið þegar familían fór eins grand út að borða og mögulegt er hér á landi. Í tilefni þess að Mastersritgerð er kláruð og farin úr landi var ákveðið að spara hvorki krónur né hógværð og skelltum við okkur á Grillið. Þar hef ég aldregi komið áður en ekki sá ég eftir þeirri lífsreynslu því sjaldan ef nokkurn tímann hef ég smakkað eins gómsætan mat. Og framleiðslan var svo flott að það var með ólíkindum. Ef einhvern tímann er réttmætt að nota orðið lekkert þá er það þegar Grillsréttum er lýst. Þvílíkt flott sett á diska. Það var alveg sama hvað var um að ræða, forréttur, aðalréttur, desert, vín, kaffi: allt var þetta unaðslegt. Við vorum alveg lens af hamingju er við yfirgáfum pleisið skömmu eftir miðnætti eftir meira en 3 tíma setu. Get hiklaust mælt með þessu fyrir þá sem því tíma.
En ég verð nú að biðjast afsökunar á sinnuleysi gagnvart vinum og vandamönnum. Er ekki kominn tími á að hittast ? Mælið kæru vinir !

PS Breytti titli á bloggi þar sem ég er eigi umkringdur risaeðlum lengur heldur nemendum.

fimmtudagur, september 08, 2005

Tennis

Hef setið límdur yfir US Open á Eurosport. Hef alltaf heillast af tennis, veit eigi af hverju. Hins vegar hef ég aðeins prófað tennis einu sinni og var þá svo lélegur að það var ekki einu sinni hægt að hlæja að því. Afar sorglegt. Ég hef því verið að velta því fyrir mér hvort það gæti ekki verið sniðugt að skella sér á tennisnámskeið svo maður eigi einhvern tímann sjens í einhverju sporti :( Hmmmm...er alvarlega að spá í þessu, ekki síst út af bumbustatus (sjá neðar). Hins vegar er þetta víst soldið dýrt en það er nú öll líkamsrækt. Auk þess væri skemmtilegra að vera eigi einn....er einhver þarna úti sem hefði áhuga ??
Æi sennilega er þetta bara bóla sem springur eins og svo margt annað sem manni dettur í hug.
Ég er með bumbu ! Ætli maður neyðist ekki til þess að fara að hreyfa sig e-ð ! Einhverjar hugmyndir ?
JIBBÝ !!!!!!!!!

Ég er búinn með ritgerðina ! Húrra fyrir mér.
Þvílík gleði :)

fimmtudagur, september 01, 2005

Bloggleti

Ekkert í fréttum nema stíflað nef.