föstudagur, júní 24, 2005

(B)Reimleikar

Rétt í þessu var ég fullviss um að það væri draugur í húsinu því ég heyrði mjög skýrt og skilmerkilega hljóð sem líktust hrotum. Þar sem ég er einn heima og glaðvakandi með slökkt á öllum hljóðmiðlum varð ég felmtri sleginn í svo sem eina mínútu þar til ég áttaði mig á því að kötturinn stendur fyrir þessari hljóðmyndun þar sem hann liggur sofandi í sófanum.
Jibbýkóla

Loksins tengdur netinu hér heima eftir endalaust vesen og ótal ferðir í EJS ! Hef því ekki lengur neina afsökun fyrir því að hella mér ekki í verkefnisvinnu....stuna. Þrátt fyrir að mér hafi fundist þriggja vikna Íslandsstopp vel langt í upphafi varð fljótlega ljóst að vinnutími yrði takmarkaður. Sinna þarf vinum og kunningjum oft og duglega :P og svo endar dvölin hér með Laugarvegsgöngu sem er þriggja daga dæmi auk undirbúnings. Með göngu þessarri og Vestfjarðaferðinni um síðustu helgi verður landshornaflakk það er ég stunda þessar þrjár vikur meira en ég hef stundað í nokkur ár !
En goggarnir bíða ..........

föstudagur, júní 17, 2005

Heima !!

Jamm er nú kominn til Íslands og það fyrir einum og hálfum sólarhring. Veðrið er frábært - betra en í Englandi ef e-ð er. Er að leggja í hann á ættarmót um helgina. Það er á Vestfjörðum sem mér finnst mjög skemmtilegt þar sem ég hef einungis einu sinni farið á Vestfirði og það var fyrir 15 árum ! Er að lyppast niður af kaffiskorti þannig að heilinn gúdderar ekki meiri bloggskrif enda gæti andleysið ekki verið meira. Nú væri ég til í einn góðann frappucino. Er hægt að fá slíkt á Íslandi ? Sjálfsagt einhversstaðar fyrir 899 kr glasið ! Yfir og út.

sunnudagur, júní 12, 2005

Le Cinema

Gaman ad horfa a ekki eina heldur tvaer frabaerar biomyndir a sama kvoldi.
Sideways: Buid ad vera a dagskranni lengi ad sja hana. Feginn ad eg dreif loks i tvi. Mannleg, dramatisk og fyndin og vinpaelingarnar skemmdu ekki fyrir.
Before sunset: Fyrri myndin var sjarmerandi, su seinni slo henni vid. Afar vel gerd og leikin og samtolin frabaer. Sannkollud perla.
Jaeja aetla ad haetta ad vera vaeminn (va hvad tetta voru morg ae, get ekki bedid ad fa islenst lyklabord aftur). Nu eru bara thrir dagar i Islandia !!!!

fimmtudagur, júní 09, 2005

Endurreisnin !

Jaeja, tolva komin i hus med nyju harda drifi og hefur dagurinn farid i ad endurhlada allt naudsynlega gillid thott mig enn vanti Office pakkan svo ekki get eg byrjad ad skrifa Mastersritgerd ! En thad er nu lika allt i lagi, allavega i dag. Verst er ad lyklabordid er enskt medan hnapparnir eru islenskir sem gerir thetta soldid flokid (Tok mig t.d. heila eilifd ad finna @). Thar sem ekkert er islenskt lyklabord i tolvunni eins og er verd eg ad lifa med thessu thar til heim er komid og mogulegt verdur ad breyta thessu. Einnig aetla eg ad reyna ad lata Dell-umbodid greida vidgerdina thar sem tolvan er enn i abyrgd og nylegar tolvur eiga bara ekki ad hrynja upp ur thurru. Nu stend eg i thvi ad endurreisa tonlistarsafnid thott thad taki nu tima ad verda 30 gigabyte aftur (sniff). Verd samt ad vidurkenna ad thad er pinku skemmtilegt ad fa svona "fresh start" a tolvuna to thad geti lika verid bogg. En brunin a mer hefur alla vega lyfst til muna vid ad endurheimta gripinn :) Sael ad sinni.

þriðjudagur, júní 07, 2005

Dramatik i Bristol

Gloggir lesendur sja ef til vill ad engir islenskir stafir eru i posti thessum. Astaeda tess er einfold, eg er tolvulaus. Talvan min astsaela do drottni sinum a sunnudagsmorgun og hefur verid a gjorgaeslu sidan tha. Astaedan ku vera algert hardadiskshrun af okunnum orsokum sem gerdist eins og skrattinn ur saudaleggnum. Tolvulaeknirinn sagdi ad slikt gaeti gerst fyrir svo nyja tolvu en likurnar vaeru alika og "being struck by lightning" svo madur vitni ordrett i manninn. Heppinn eg. Eg fae hana reyndar aftur a morgun sem betur fer og skilst mer ad hun eigi ad verda heil heilsu. Su heilsa mun hins vegar kosta mig 155 pund fyrir utan ta skemmtilegu stadreynd ad allt sem a tolvunni var er tynt og trollum gefid !! Allsherjar endurreisn tolvunnar minnar godu mun thvi verda ad eiga ser stad. Sem betur fer hafdi eg vit a ad taka extra copy af thvi allra mikilvaegasta sem tengist Mastersverkefninu en medal tess sem er glatad er allt sem eg gerdi i hinum kursunum, slatti af ljosmyndum + um 30 gigabyte af tonlist. Eg er thvi soldid vaengbrotinn og hjartasar ungur madur tessa daganna. Einnig var thad visst sjokk ad vera alveg tolvulaus i tvo daga thar sem hun er i senn vinnutaeki, sjonvarp, utvarp, upplysingabrunnur og samskiptaaed. Eg neyddist thvi til ad lesa i bok ! Hugsid ykkur hryllinginn !!

laugardagur, júní 04, 2005

Meðmæli vikunnar:

Kvikmynd: Sin City
Tónlist: Dungen
Sjónvarpsefni: Desperate Housewives (ef e-r er ekki enn uppfræddur)
Aldin: Avocado
Ostur: Ekta feta úr geita- og kindamjólk
Drykkur: Grolsch og greipdjús (ekki saman þó)
Fóttau: Mokkasínur úr RL-búðinni í Skeifunni
Plan fyrir sumarið: Heilsa upp á Snorkinn er hann dvelur á íslenskri grundu í 3 vikur frá og með 15. júní :)