föstudagur, febrúar 22, 2008

Sma update

Afsakid skort a islenskum stofum. Her i New York er snjor otrulegt en satt. Eg vaknadi i morgun  vid mikinn skarkala uti, hrop og koll, skofluhljod og umferd havaerra vinnuvela. Midad vid laetin hefdi matt buast vid ad tad vaeri mannhaedarsnjor en tetta voru einhverjir skitnir 7 cm eda svo og flest ordid ad slabbi. Tar sem folk var to ekki a ferli svo sem i gordum og blomabedum var agaetis snjolag. Tad er tvi oneitanlega huggulegur bragur yfir borginni, ekki sist her uppi a Upper West Side vid natturugripasafnid tar sem tren og grasflatirnar eru taktar snjo og maedur draga born sin i snjototum og folk kastar snjoboltum i hvort annad. Var einstaklega notalegt ad maeta (seint um sidir) hingad uppeftir med kaffi og kanilsnud og horfa a slyddusnjoinn falla mjuklega til jardar. Verst ad Islendingurinn borubratti tjaist mjog af tvi ad eiga ekki almennilega kuldasko her i borg.
Tannig ad skapid er gott, to eg se ad byrja a tvi ad utbua fyrirlestur um einstaklega leidinlega grein fyrir naestu viku. Namid siglir afram haegt og bitandi. Timarnir eru flestir skemmtilegir, m.a.s. tolfraedin er ekki svo hraedileg. Tad vekur to ugg i brjosti ad hugsa til tess ad tad eru einungis 3 og halfur manudur i hid hrikalega FIRST EXAM sem mun ollu rada um framtidina. Svo hjalpar ekki til ad vera litlu naer um hvad hugsanlegt doktorsverkefni mun fjalla um. En tad kemur i ljos um sidir.
Margret kemur i heimsokn eftir einungis taepar 3 vikur og fylgir tvi mikil tilhlokkun. Ekki sist tar sem seinasta gesti var bodid upp a litid annad en ad elda ofan i Hr Flensu hafragraut og fa ekkert nema hor og hosta i takkir. Tad er tvi eins gott ad heilsan verdi i lagi !
En hvad er nu ad fretta af ollum a Islandi eiginlega ? 

þriðjudagur, febrúar 05, 2008

Staða mála:


Það sem fór:

- Flensan, sem betur fer ! Hryllingnum er lokið og þótt fyrr hefði verið. Að eyða viku af dýrmætum tíma sínum í svona ógeð er með eindæmum ömurlegt.

- Halldís :( Hún flaug alla leið til Danmerkur í gær með nefholubólgur og ábyggilega smá hita. Ekki öfunda ég hana að hafa gengið í gegnum það. Hennar er hins vegar sárt saknað og allra stórskemmtilegu stundana þó þær hafi því miður verið of margar við mitt sjúkrabeð í stað allra æstu dansiballana og átveislana sem við höfðum ætlað okkur.

-Ásthildur. Eftir mánaðardvöl í New York fór hún í fyrradag aftur heim til Íslands. Við náðum nú að hittast alloft og éta og éta eilítið meira en veikindin settu smá strik í reikningin fyrir seinustu plönin.

- Röddin. Seinustu eftirköst flensu eru fyrir utan máttleysi og smá hor í nös, algert raddleysi. Ég var að reyna að halda uppi samræðum við skólafélaga mína í dag. Hefði alveg eins getað talað íslensku við þá, þeir skildu ekki neitt. Ég verð bara að tjá mig með leikrænu táknmáli í staðinn. Það gæti svo sem verið gaman.

Það sem fór en kom aftur:

- Lyktarskyn og bragðskyn og þökkum öllum dýrlegum máttarvöldum fyrir það því Snorri án bragðskyns er eins og dagur án birtu eða bók án orða.

Það sem varð eftir:

-Ég, frekar uppgefinn og lítill í mér. Það er alltaf erfitt að kveðja og verða einn eftir, ekki síst þegar heilsufarið gæti verið betra.

- Endalaust drasl eftir okkur sjúklingana sem ég hef enga orku til að ganga frá.

- Engin hrein sængurföt. Flensa + bati + paracetamol = sviti og meiri sviti..... og engin orka til að þvo þvott eða fara og kaupa sængurföt. Á morgun segir sá lati en líka sá lasni.

-Snýtipappírskúlur á ótrúlegustu stöðum.

-Klósett sem á það til að stíflast og rennur í daginn út og inn svo ambiencið er líkt og við fjallalind.

- Peli af rauðum opal og heil Reyka vodka flaska sem aldrei gafst tækifæri til að stúta, ekki einu sinni dreypa á. Hver vill koma og hjálpa mér með það ???

-Rjómakaka sem aldrei var etin og er orðin of gömul en ég tími samt ekki að henda...

- Alvara lífsins. Skólinn er byrjaður. Ég þarf að lesa og koma mér af stað í öllu saman.

laugardagur, febrúar 02, 2008

Pestarbæli

Jæja, það leynist líf í gömlum glæðum og biðst ég forláts á bloggskorti. Síðan ég ritaði hér seinast er ég auðvitað búinn að fara heim til Íslands og snúa til baka til New York.
Það markverðasta héðan úr borginni er annars vegar það að social-lífið hefur verið í öndvegi enda bæði Ásthildur staðsett hér um þessar mundir og svo kom Halldís í heimsókn til mín (og er enn). Hægt er að sjá góða dokjúmentasjón með myndum á síðu Halldísar (www.halldiso.blogspot.com).
Öllu verra hefur þó ástandið verið síðustu daga. Í dag er fimmti dagur einnar svakalegustu flensu sem ég hef upplifað með tilheyrandi hita, kvefi, hálsbólgu, verkjum og vanlíðan. Ég veit ekki hvar ég náði mér í þennan viðbjóð en þetta hefur verið hin erfiðasta þolraun. Ég er þó farinn að sjá fyrir endann á þessu því í dag er fyrsti dagurinn sem ég er meira og minna hitalaus (enda hófst dagurinn með svitaköstum galore). Það er þó ljóst að fullkominni heilsu verður ekki náð fyrr en í næstu viku. Skemmtiferð Halldísar tók því á sig sérkennilega mynd þar sem hún var sett í hlutverk hjúkrunarkonu sem eldaði handa mér hafragraut og keypti heilu lyfjabúrin í apótekinu. Hún gat þó notið borgarinnar á eigin vegum og varð hér fljótt öllu kunnug.
Hið óumflýjanlega gerðist loksins í morgun en nú er hún orðin veik líka ! Litla íbúðin er því orðin að algeru pestarbæli og það verður fróðlegt að sjá hvernig þetta þróast. Vonandi verð ég orðinn nógu hress á morgun til að geta tekið að mér hjúkrunarstörfin. Það versta er að Halldís þarf að fara í flug á mánudaginn, ekki bara til Íslands heldur alla leið til Danmerkur. Ef hún verður jafn veik og ég hef verið þá á það eftir að vera gríðarleg þolraun og öfunda ég hana ekki af því sem framundan er. Við sjáum hvað setur.
Úff nú er máttleysið alveg að fara með mig... læt þetta duga í bili.