Jamm í dag á ég afmæli. Tuttugu- og þriggja. Flestum finnst það ótrúlega ómerkilegt afmæli en ég er annarar skoðunar. Það er eitthvað sérstakt við að verða 23, ég get ekki alveg áttað mig á því hvað það er, en það er eitthvað. Kannski af því að það táknar ekki neitt nema það að árin líða og aldurinn færist yfir !! Ekki það að það sé slæmt. Þetta er mikill prímaaldur held ég. En allavega í tilefni dagsins fór ég og eyddi pening. Keypti mér skó (brúna leðurskó !) sem er nú ekki daglegt brauð þannig að ég var nokkuð ánægður með þann árangur. Ég keypti mér líka 4 geisladiska og verður það að segjast að geisladiskakaup geta vel talist sem daglegt brauð. Ég var að telja... og ég er búinn að kaupa mér 24 diska síðan ég kom hingað !! Það eru næstum því 3 diskar á viku. Hmmm... og ég sem á að teljast fátækur námsmaður sem lepur dauðann úr skel á erlendri grund! En hvað getur maður annað gert þegar flestir diskar kosta 5 pund eða 10 pund ? Fyrir forvitna þá er hér listi yfir þá diska sem ég hef keypt í Englandi:
Snow Patrol - Final Straw
Wilco - Being there
Jill Scott - Beautifully Human
Placebo - Without you I'm nothing
Beck - Mutations
Kate Bush - The whole story
Interpol - Antics
Grandaddy - The Sophtware Slump
My Bloody Valentine - Loveless
Ben Folds Five - Ben Folds Five
Belle and Sebastian - If you're feeling sinister
The Smiths - Louder than bombs
Super Furry Animals - Songbook: The singles
The Delgados - The Great Eastern
The Zutons - Who killed the Zutons ?
Modest Mouse - Good news for people who love bad news
Echo and the Bunnymen - Ocean Rain (Remastered)
Sufjan Stevens - Greetings from Michigan the Great Lake State
Mugison - Lonely Mountain
The Tallis Scolars sing Thomas Tallis (þessi af aðeins öðru sauðahúsi en frábær engu að síður)
og svo afmælisdiskarnir:
I am Kloot - Natural History
The Flaming Lips - Yoshimi battles the Pink Robots
Ben Folds - Rockin' the suburbs
Joni Mitchell - Blue
Þar hafiði það...mig grunar að ég fái meira út úr því að skrifa þennan lista en aðrir að lesa hann en það er líka í góðu lagi. Ég á nú einu sinni afmæli :)
Jei, svo fer ég til London á þriðjudaginn að sjá síðustu tónleika The Beta Band á þeirra tónleikaferli því þeir eru víst að leggja upp laupana (því miður). Er ég mjög spenntur en passa mig samt að blogga ekki af mér spjarirnar þegar ég lýsi tónleikunum eftir á eins og gerðist síðast svo eftirminnilega. Ég mun síðan eyða miðvikudeginum í stórborginni og eins og áður njóta gestrisni Ólafar og Helga. Hlakka mikið til.
Kveð að sinni.

