Mmmmmmm....rauðvín, geitaostur, aspas, trufflur, panna cotta, espresso.....þetta getur aðeins þýtt eitt; Margrét er í heimókn og nautnaseggurinn er í hávegum hafður. Veitingastaðir, kaffihús og verslanir af ýmsum toga í öndvegi. Doktorsnámsstress, króna í frjálsu falli, bumbuvöxtur og öðru leiðindastöffi er lítill gaumur gefinn. Og New York er alveg pleisið til að gera sér glaðan dag.
miðvikudagur, mars 19, 2008
Gott er að fá gesti....

föstudagur, febrúar 22, 2008
Sma update
Afsakid skort a islenskum stofum. Her i New York er snjor otrulegt en satt. Eg vaknadi i morgun vid mikinn skarkala uti, hrop og koll, skofluhljod og umferd havaerra vinnuvela. Midad vid laetin hefdi matt buast vid ad tad vaeri mannhaedarsnjor en tetta voru einhverjir skitnir 7 cm eda svo og flest ordid ad slabbi. Tar sem folk var to ekki a ferli svo sem i gordum og blomabedum var agaetis snjolag. Tad er tvi oneitanlega huggulegur bragur yfir borginni, ekki sist her uppi a Upper West Side vid natturugripasafnid tar sem tren og grasflatirnar eru taktar snjo og maedur draga born sin i snjototum og folk kastar snjoboltum i hvort annad. Var einstaklega notalegt ad maeta (seint um sidir) hingad uppeftir med kaffi og kanilsnud og horfa a slyddusnjoinn falla mjuklega til jardar. Verst ad Islendingurinn borubratti tjaist mjog af tvi ad eiga ekki almennilega kuldasko her i borg.
Tannig ad skapid er gott, to eg se ad byrja a tvi ad utbua fyrirlestur um einstaklega leidinlega grein fyrir naestu viku. Namid siglir afram haegt og bitandi. Timarnir eru flestir skemmtilegir, m.a.s. tolfraedin er ekki svo hraedileg. Tad vekur to ugg i brjosti ad hugsa til tess ad tad eru einungis 3 og halfur manudur i hid hrikalega FIRST EXAM sem mun ollu rada um framtidina. Svo hjalpar ekki til ad vera litlu naer um hvad hugsanlegt doktorsverkefni mun fjalla um. En tad kemur i ljos um sidir.
Margret kemur i heimsokn eftir einungis taepar 3 vikur og fylgir tvi mikil tilhlokkun. Ekki sist tar sem seinasta gesti var bodid upp a litid annad en ad elda ofan i Hr Flensu hafragraut og fa ekkert nema hor og hosta i takkir. Tad er tvi eins gott ad heilsan verdi i lagi !
En hvad er nu ad fretta af ollum a Islandi eiginlega ?
þriðjudagur, febrúar 05, 2008
Staða mála:
Það sem fór:
- Flensan, sem betur fer ! Hryllingnum er lokið og þótt fyrr hefði verið. Að eyða viku af dýrmætum tíma sínum í svona ógeð er með eindæmum ömurlegt.
- Halldís :( Hún flaug alla leið til Danmerkur í gær með nefholubólgur og ábyggilega smá hita. Ekki öfunda ég hana að hafa gengið í gegnum það. Hennar er hins vegar sárt saknað og allra stórskemmtilegu stundana þó þær hafi því miður verið of margar við mitt sjúkrabeð í stað allra æstu dansiballana og átveislana sem við höfðum ætlað okkur.
-Ásthildur. Eftir mánaðardvöl í New York fór hún í fyrradag aftur heim til Íslands. Við náðum nú að hittast alloft og éta og éta eilítið meira en veikindin settu smá strik í reikningin fyrir seinustu plönin.
- Röddin. Seinustu eftirköst flensu eru fyrir utan máttleysi og smá hor í nös, algert raddleysi. Ég var að reyna að halda uppi samræðum við skólafélaga mína í dag. Hefði alveg eins getað talað íslensku við þá, þeir skildu ekki neitt. Ég verð bara að tjá mig með leikrænu táknmáli í staðinn. Það gæti svo sem verið gaman.
Það sem fór en kom aftur:
- Lyktarskyn og bragðskyn og þökkum öllum dýrlegum máttarvöldum fyrir það því Snorri án bragðskyns er eins og dagur án birtu eða bók án orða.
Það sem varð eftir:
-Ég, frekar uppgefinn og lítill í mér. Það er alltaf erfitt að kveðja og verða einn eftir, ekki síst þegar heilsufarið gæti verið betra.
- Endalaust drasl eftir okkur sjúklingana sem ég hef enga orku til að ganga frá.
- Engin hrein sængurföt. Flensa + bati + paracetamol = sviti og meiri sviti..... og engin orka til að þvo þvott eða fara og kaupa sængurföt. Á morgun segir sá lati en líka sá lasni.
-Snýtipappírskúlur á ótrúlegustu stöðum.
-Klósett sem á það til að stíflast og rennur í daginn út og inn svo ambiencið er líkt og við fjallalind.
- Peli af rauðum opal og heil Reyka vodka flaska sem aldrei gafst tækifæri til að stúta, ekki einu sinni dreypa á. Hver vill koma og hjálpa mér með það ???
-Rjómakaka sem aldrei var etin og er orðin of gömul en ég tími samt ekki að henda...
- Alvara lífsins. Skólinn er byrjaður. Ég þarf að lesa og koma mér af stað í öllu saman.

laugardagur, febrúar 02, 2008
Pestarbæli
Jæja, það leynist líf í gömlum glæðum og biðst ég forláts á bloggskorti. Síðan ég ritaði hér seinast er ég auðvitað búinn að fara heim til Íslands og snúa til baka til New York.
Það markverðasta héðan úr borginni er annars vegar það að social-lífið hefur verið í öndvegi enda bæði Ásthildur staðsett hér um þessar mundir og svo kom Halldís í heimsókn til mín (og er enn). Hægt er að sjá góða dokjúmentasjón með myndum á síðu Halldísar (www.halldiso.blogspot.com).
Öllu verra hefur þó ástandið verið síðustu daga. Í dag er fimmti dagur einnar svakalegustu flensu sem ég hef upplifað með tilheyrandi hita, kvefi, hálsbólgu, verkjum og vanlíðan. Ég veit ekki hvar ég náði mér í þennan viðbjóð en þetta hefur verið hin erfiðasta þolraun. Ég er þó farinn að sjá fyrir endann á þessu því í dag er fyrsti dagurinn sem ég er meira og minna hitalaus (enda hófst dagurinn með svitaköstum galore). Það er þó ljóst að fullkominni heilsu verður ekki náð fyrr en í næstu viku. Skemmtiferð Halldísar tók því á sig sérkennilega mynd þar sem hún var sett í hlutverk hjúkrunarkonu sem eldaði handa mér hafragraut og keypti heilu lyfjabúrin í apótekinu. Hún gat þó notið borgarinnar á eigin vegum og varð hér fljótt öllu kunnug.
Hið óumflýjanlega gerðist loksins í morgun en nú er hún orðin veik líka ! Litla íbúðin er því orðin að algeru pestarbæli og það verður fróðlegt að sjá hvernig þetta þróast. Vonandi verð ég orðinn nógu hress á morgun til að geta tekið að mér hjúkrunarstörfin. Það versta er að Halldís þarf að fara í flug á mánudaginn, ekki bara til Íslands heldur alla leið til Danmerkur. Ef hún verður jafn veik og ég hef verið þá á það eftir að vera gríðarleg þolraun og öfunda ég hana ekki af því sem framundan er. Við sjáum hvað setur.
Úff nú er máttleysið alveg að fara með mig... læt þetta duga í bili.

mánudagur, desember 17, 2007
Í húminu...
Ligg hér andvaka uppi í rúmi, eins og endra nær, nema í nótt er brottfararspenna í ofanálag. Á morgun flýg ég heim, sennilega í 900 millibara lægð eða álíka, sem ég er ekki sérlega spenntur fyrir. Það er meira að segja hvasst hér í New York, í fyrsta sinn síðan ég kom fyrir 4 mánuðum síðan held ég svei mér þá. Það er merkilegt til þess að hugsa að ég sé nú þegar búinn að upplifa líf í New York í 4 mánuði. Að sumu leyti finnst mér það passa, það er langt síðan ég yfirgaf Ísland og alla mína nánustu. Samt finnst mér furðulega lítið hafa gerst á þessum 4 mánuðum, allt varð fljótt ótrúlega hversdagslegt, íbúðin, hverfið, neðanjarðarlestin, safnið, tímarnir osfv. Það er nefnilega merkilegt hversu auðvelt það er að finna sér rútínu í borg sem ætti að bjóða upp á ótal ólíka möguleika og mismunandi stílfærslur. Stundum fattar maður þetta og ákveður að breyta til; labbar aðra götu en vanalega, fær sér eitthvað skrítið að borða, tekur lestina einni stöð styttra osfv.
Það verður fínt að koma heim, breyta aðeins um umhverfi, hitta fólk sem maður þekkir og slaka á. Ekki það að doktorsnámið hafi verið streituvaldandi eða neitt sérlega bisí yfirhöfuð. Þvert á móti væri ég alveg til í meira að gera, en maður þarf víst að finna sér verkefni, það er aðalhausverkur framhaldsnemans. En á næstu önn verð ég amk í fleiri kúrsum, auk þess sem stóra prófið sem ég fer í næsta sumar verður nær í tíma og þ.a.l. meiri pressuvaldur en það er núna þegar miklu auðveldara er að taka billega pakkann á þetta, fara snemma heim eða hanga aðeins meir á netinu.
En jæja, ég ætla að hætta þessu rausi og skríða ofan í svefnpokann. Já ég ætla að sofa í svefnpoka í nótt því ég tók utan af rúmunum og þvoði allt og ég nenni ekki að setja lak og sængurver á fyrir eina skitna nótt.
Sé ykkur eftir ca. 2 daga. Ég verð þó örugglega þreyttari en orð fá lýst. Ekki nóg með að ég sé 5 tímum á eftir þá er ég búinn að snúa sólarhringnum við þannig að líkamsklukkan er á ca. Hawaii tíma.
Ísland í augsýn...

miðvikudagur, nóvember 28, 2007
Birthday Boy
Jæja, ég skulda færslu og þó fyrr hefði verið.
Samkvæmt íslenskri klukku á ég afmæli, þó það sé ennþá 27. nóvember hér í USA. Tuttugu- og sex eru þau orðin árin, hálfur spilastokkur ! Því verður ekki neitað að tíminn líður æ hraðar og hraðar, árin hreinlega fljúga fram hjá. Mér líður þó langt í frá eins og gömlum karli (þó ég kannski hljómi eins og einn núna) og ég hreinlega skil ekki af hverju ég er ekki 22 ennþá. Mér finnst ég lítið hafa breyst amk þó svo sem eitt og annað hafi á daga manns drifið.
Afmælisdagurinn á morgun verður eins óspennandi og mögulegt er. Auðvitað þurfti ég endilega að eiga afmæli á miðvikudegi þetta árið en það er eini dagur vikunnar sem ég er í tímum og það bæði kvölds og morgna. Ég hef þó miðpart dagsins fyrir sjálfan mig og þeir sem mig þekkja eru sjálfsagt ekki hissa á því að ég hyggst halda upp á daginn með því að gera vel við þá líkamshluta sem mér er einna mest annt um, jú meltingarfærin, ekki síst tungu og tennur og bragðlauka ! Mmmmm, ég hyggst semsagt fá mér ljúffengan hádegismat á morgun. Hvað það verður veit ég ekki en eitthvað merkilegra en samloka eða súpa, svo mikið er víst.
Skrambinn, ég hefði ekki átt að fara að velta þessu fyrir mér núna, ekki eftir að hafa étið guðsvolaðan hafragraut í kveldmat. Hmmmm, hvað á ég gott til að narta í ?? Pretzelsið kláraði ég nærri því áðan. Ég á ekki ís því frystirinn er svo lélegur og íslenska nammið sem ég kom með í sumar er ógirnilegt svo ekki sé meira sagt. Hmmmm, kannski fæ ég mér bláber og jarðarber sem ég á inni í ísskáp. Hmmmmmmmmmmmm......
Það eru bara 3 vikur í að ég komi heim í jólafrí. Mikið hlakka ég nú til !! Það verður ágætt að taka sér pásu frá einbúalíferninu hér og njóta þess að láta stjana við sig í foreldrahúsum og hitta vini og vandamenn. Það er eins gott að það verði tekið vel á móti manni :)
Læt þetta duga, ætla að gera eitthvað í þessu hungurs/græðgisástandi.........

fimmtudagur, nóvember 01, 2007
Hjartað tók kipp...
Ég er eiginlega ekki búinn að segja neinum þetta en það snýst um eitt alveg magnað og ótrúlega skemmtilega tilviljun.
Ég semsagt fer einu sinni í viku (á Miðvikudögum) alla leið til Queens College sem eins og nafnið gefur til kynna er í Queens og þar að auki í mjög fjarlægum hluta Queens. Þar sæki ég tíma að kvöldi til. Eins og gefur að skilja tekur langan tíma að komast þangað eða um einn og hálfan tíma í lest og svo strætó, en maður kippir sér ekki upp við það svona einu sinni í viku. Margir New York búar þurfa að ferðast svo langt eða lengra á hverjum einasta vinnudegi.
En allavegana, í síðustu viku fór ég í fyrsta sinn upp á aðra hæð í byggingunni sem tíminn er í til að kaupa mér kaffi á kaffiteríunni þar. Bygging þessi er týpisk ljót háskólabygging með múrsteinslaga flísum og endalaust af gráu og brúnu. Klassísk raunvísindabygging. En meðan ég bíð í röð til að panta mér kaffi er mér litið til vinstri og sé þar risastórt, afar litskrúðugt málverk á einum veggnum. Málverkið var af húsum er stóðu við hafsund og tilkomumikil fjöll í baksýn. Það var þá sem hjartað tók kipp því þetta var kunnulegt landslag. Það fór ekkert á milli mála að þarna var hin heilaga þrenning Esja, Akrafjall og Skarðsheiði og húsaþökin í forgrunni voru gamla góða Reykjavík. Mér varð svo hvert við að sjá þetta málverk, þarna af öllum stöðum, að ég yfirgaf kaffiröðina og labbaði upp að málverkinu til að skoða það betur. Mér datt strax í hug hver málarinn var og reyndist tilgáta mín rétt því stílbragð Louisu Matthíasdóttur er auðvitað einstakt. Auk þess var hún New Yorkbúi með meiru og því kannski ekkert skrítið að íslenskt málverk í New York væri hennar. En hvað það var að gera í þessari byggingu get ég ekki skilið, og líka þetta málverk, af þessu landslagi ! Mér gat ekki liðið öðruvísi en að þetta væri sérstaklega ætlað mér og í dag þegar ég fór aftur til Queens þá fór ég aftur upp og keypti mér kaffi, ekki síst til að geta horft á þessa tilkomumikla sýn og fá Ísland beint í æð einhvern veginn. Sem er óneitanlega hressandi þegar maður er svona langt í burtu í langan tíma, ekki síst þegar það kemur manni svona í opna skjöldu.

miðvikudagur, október 31, 2007
Okurland
Einstaka sinnum rifjast upp fyrir manni tetta eina sem er serstaklega slaemt vid tad ad bua a Islandi og ta getur madur gladst yfir tvi ad vera annars stadar. Var semsagt ad skoda i fyrsta sinn hina frabaeru okursidu Dr. Gunna : http://this.is/drgunni/okur

laugardagur, október 20, 2007
Ekki með öllu horfinn...
Jæja, síðasta færsla var ekkert kjaftæði því framtaksleysið hefur einnig sett lit sinn á blogg þetta. Ég skulda svo sannarlega færslu !
Síðan ég skrifaði seinast ber það helst til tíðinda að fyrsta vikan í október var einstaklega skemmtileg því þá dvöldu afar góðir gestir hér hjá mér í viku. Það voru stóra systir og Alfa vinkona okkar. Þær fylltu litlu íbúðarkytruna mína miklu lífi, hressleika og umstangi sem virkaði sem vítamínsprauta fyrir New York búann. Einnig fylltu þær íbúðina með innkaupapokum enda athöfnin að versla ætíð vinsæl er borg þessi er heimsótt. Ég reyndar stóð mig ekkert síður í kaupunum sem var auðvitað mjög skemmtilegt þótt buddan hefði mátt hækka í viðvörunarbjöllunum. Peningastatus er semsagt frekar rýr þessa dagana, það hefur gengið hratt á alla sjóði. En næstu mánaðamót fæ ég bæði styrkgreiðslu auk launa í fyrsta skipti þannig að þá batnar ástandið.
Það var óneitanlega erfitt að horfa á eftir gestunum þegar þær fóru og sitja einn eftir á nýjan leik. Enda lagðist ég í kör með kvef og hita og eyddi næstu dögum að mestu leyti í rúminu í eymd og volæði eins og mér einum er lagið. Þjáist ég enn af hori en er annars orðinn hress og löngu farinn á fætur.
Veðrið hér í New York heldur áfram að vera stórfurðulegt. Fyrsta vikan í október var svakalega heit, eins og sumar á Spáni. Stelpurnar áttu síður en svo von á slíkum hita og svita. Það var þó óneitanlega gaman að geta setið úti á kvöldin og hápunkturinn var að upplifa algera útihátiðarstemmingu á stórtónleikum Arcade Fira á Randalls Island. Það var magnað kvöld og veðurblíðan hafði þar mikið að segja. Um það leyti sem þær fóru snarlækkaði hitastigið, örugglega um 15 gráður og skyndilega varð mjög kalt. Það gæti haft eitthvað að segja um lasleikann hjá mér. En nú er aftur farið að hitna og þótt það sé að koma nóvember getur maður verið úti á stuttermabol á daginn og á kvöldin er þunn bómullarpeysa meira en nóg. Þetta er óneitanlega skrítið !
Ég er orðinn alger sjónvarpsfíkill og á ég ekki einu sinni sjónvarp !!! Þannig er nefnilega mál með vexti að maður getur horft á nær alla sjónvarpsþætti beint á netinu án þess að þurfa að hlaða þeim niður á undan. Ég er farinn að glápa á alls konar þætti allt frá dramasápum til spæjaragrínþátta auk standarda eins og Heroes, Survivor og Ugly Betty. Ef ég get mælt með einhverjum góðum þáttum þá eru 30 Rock með fyndnari þáttum í amerísku sjónvarpi þessa dagana, Pushing Daisies er ný sería sem er þrælskemmtileg, svona Big Fish eða Amelie fílingur. Svo eru Friday Night Lights afar vel gerðir þættir, þeir eru sýndir á Skjá Einum heima held ég. Svo handa aðdáendum amerískra unglingasápa þar sem leikarar eru með eindæmum fallegir og miklu eldri en persónurnar sem þær leika, þá er nýja serían Gossip Girl tilvalin fyrir ykkur. Hún gerist í New York og er skömmustulega djúsí þótt hún risti auðvitað grunnt og sé ein gangandi klisja.
Meðan ég sit og skrifa þetta eru allir heima á Airwaves. Ég er afar öfundsjúkur !! Ekki að ég geti ekki farið á tónleika því hér er sko meira en nóg og ég búinn að vera mjöööög duglegur að fara. En stemmingin á Airwaves er svo einstök, og leiðinlegt að missa af því þetta árið (og næstu væntanlega !!). Góða skemmtun í kvöld !!!

sunnudagur, september 30, 2007
Skammastu þín... ljótur strákur !!
Ég er svo mikill letingi og framtaksleysingi (ef það er orð) að annað eins hefur aldrei sést. Hvernig endar þetta eiginlega ??

miðvikudagur, september 19, 2007
Hressleiki
Þessi færsla átti að vera eitt melankólískt sjálfsvorkunnarraup um einmanaleika, tilgangsleysi, andleysi auk verkja í liðamótum en ég ákvað að slík bölsýni gengi ekki. Frekar ætla ég að segja frá því hvað það var fyndið á laugardagskvöldið en þá fór ég á tónleika. Ég fór aleinn á æsta danstónlistartónleika, klæddi mig í mest spönkí föt sem ég fann, skræpótta hettupeysu og þröngar gallabuxur og auðvitað með nýju gleraugun. Þar sem ég á lífsins ómögulegt með að mæta seint þegar það er æskilegt var ég kominn allt of snemma á tónleikastaðinn eða um það leyti sem stóð á miðanum að tónleikarnir ættu að byrja. Það voru auðvitað afar fáir mættir þannig að ég fékk mér bjór og stóð úti í horni og reyndi að láta lítið á mér bera (eða eins lítið og hægt er þegar maður er í skæpóttri hettupeysu). Ég sendi nokkur sms eins og maður gerir þegar maður er augljóslega einn og þóttist senda enn fleiri þótt ég væri bara að skoða gömul sms eða símaskrána (sem er auðvitað mjög stutt því síminn glænýr). Leið og beið og aldrei ætluðu tónleikarnir að byrja. Það var reyndar hress dj að spila hressa tónlist og fólkinu sem fjölgaði stöðugt var ágætlega skemmt. Það má segja það um Ameríkana að þeir þora að hrista skankana, meira að segja áður en aðalfúttið hefst og án þess að vera ofurölvi. Íslendingar mættu taka það til fyrirmyndar, freðýsurnar sem þeir alltaf eru á tónleikum. Reyndar voru nú allra þjóða kvikindi á þessum tónleikum, mér fannst t.d. annar hver maður tala sænsku. En allaveganna nú voru liðnir tveir tímar síðan ég mætti á svæðið og tveir bjórar komnir í maga og fólk orðið allhresst. Kemur þá loksins einhver hljómsveit sem ég taldi vera hina einu réttu en þessi hljómsveit (eða plötusnúðar öllu heldur) fara að spila e-ð allt annað og drepleiðinlegt. Datt allur dampur úr fólki, bæði vegna þess hversu leiðinlegt þetta var og einnig því það áttaði sig á að biðin eftir aðalnúmerinu væri enn ekki búin. Ég sá að til að lifa af biðina og hina elífu skömm sem felst í því að vera einn á svona tónleikum þá varð ég að fá mér e-ð meira í glas og ekki dugði bjór til þannig að tvöfaldur gin og tónik varð fyrir valinu. Þremur tímum eftir komu mína, að loknu hinum rótsterka g& t og allmörgum gervismsum síðar kom loksins aðalgrúppan og svið og var sem betur fer hin skemmtilegasta. Verst hvað maður var búinn á því eftir alla biðina auk þess sem þeir spiluðu bara í klukkutíma. Og ég sem hélt að tónleikar byrjuðu seint heima, þetta var alveg absúrd. Þá veit ég það næst.
Æ, þó þetta hafi nú ekki verið svo skemmtileg saga þá hresstu skrifin á henni mig við svo öll melankólía er farin. Skál fyrir því.

þriðjudagur, september 11, 2007
Drepa timann...
Hae, sit her i tolvuveri og bid tess ad urhellinu sloti. Tad er buid ad vera svo rakt sidustu daga ad tad hlaut ad bresta a rigning einhverntimann og tad gerdist i dag med toluverdum tilburdum. Eg var audvitad Fattlaus Fjeldsted og for ut an regnhlifar og fylgdu to trjar med ibudinni.
Adan turfti eg ad styra efnafraeditilraun tar sem medal annars var mjolk latin sjoda vid mikinn hita i klukkutima. Tid getid imyndad ykkur hvernig tad endadi. Tad var bara heppilegt ad brunavarnarkerfid for ekki i gang. Krakkarnir virtust to hafa gaman af, to tetta hafi verid frekar kaotiskur timi.
Tad er hins vegar ekki meira a dagskra hja mer i tessari viku tvi a morgun hefst Jewish Holiday og allir timar falla nidur tad sem eftir er vikunnar. Eg verd tvi bara ad sitja og bora i nefid og tykjast vera duglegur. Tetta doktorsnam aetlar ad fara rolega af stad. En tad er bara fint. Verst ad eg hef ekki getad farif i miklar skodunarferdir um borgina tvi tad hefur einfaldlega verid of heitt. Madur getur ekki hugsad ser ad fara i gongutura, bara ad labba 100 m i nedanjardarlestina veldur svitabadi. Nuna er adeins svalara en komin rigning i stadinn tannig ad madur vill helst vera innandyra.
I gaer at eg kartoflur med smjori og braud med hummus.... tid sjaid hvad tetta blogg er spennandi og t.a.l. hvad lif mitt er spennandi tessa daganna.
En ekki dugar nein depurd enda hefur allt verid afar ljuft hingad til. Tyrfti bara ad hafa adeins meira ad gera. Um helgina aetla eg to a tvenna tonleika og i Oktober verdur tonleikafrensy. Eg nefnilega flippadi ut a ticketmaster um daginn og keypti gomsu af midum. I Oktober koma lika gestir, min kaera systir Bjorg og Alfa vinkona okkar. Taer fa ad profa svefnsofann og fa tad verkefni ad skemmta mer gestgjafanum.
Ef fleiri vilja koma i heimsokn ta maeli eg med haustmanudum tvi eins og eg hef margraett ta er aaaaaansi rolegt hja mer.... Jaeja best ad finna einhverja netsidu til ad skoda..

mánudagur, september 03, 2007
Labour Day Weekend = Leti
Í dag er Labour Day sem er frídagur hjá Könum. Það er því ágætis afsökun fyrir letilíf. Verst hvað letilíf hefur verið full mikið ríkjandi þessa helgina. Þetta er þriðji dagurinn sem ég fer varla út úr húsi. Á laugardaginn var þynnka í gangi sem olli mjög miklu framtaksleysi. Ég hafði það þó af að fara í kínverska laundromatið hinum megin við hornið og þvo nærbuxur og boli en á því var mikil þörf. Það reyndist mér um megn og ég tók mér góðan síðdegisblund.
Í gær gat ég svo ekki frestað því lengur að taka almennilega til sem og ég gerði og voru sum skúmaskotin í þessari annars ágætu íbúð skítug svo ekki sé meira sagt. Tiltekt þessi var svomikil þolraun að eftir að hafa farið í Whole Foods (yndislegasta búð í heimi) og keypt inn, hitað tilbúna súpu og búið til æst salat, etið súpuna og salatið og vaskað upp þá gat ég ekki meir þann daginn.
Í dag er svo planið að lesa greinar fyrir tíma á miðvikudaginn. Svo þarf ég líka að undirbúa kennslu á fimmtudag en það er sem betur fer ekki kennsla á morgun. Kennslan er annars skemmtileg, ég er búinn að kenna tvo verklega tíma og það gekk vel. Krakkarnir hressir og flest þeirra áhugasöm.
Úff það er svo heitt hér inni að ég svitna á efrivörinni við þessar skriftir. Held ég fari og hækki í loftkælingunni. Og svo ætla ég út í labbitúr og fá mér ís.....

laugardagur, ágúst 25, 2007
Sími ofl.
Jæja komið þið marg blessuð og sæl. Sit hér á kaffihúsi sem er kósí per excelans auk þess með þráðlaust net þannig að fartölvan er með í för. Er nú búinn að vera hér í Njú Jork í viku og líkar lífið vel. Enda er alvara lífsins ekki alveg hafin enn, skólinn byrjar ekki fyrr en í næstu viku. En þá er það líka ekkert elsku mamma meir því strax á þriðjudaginn þarf ég að fara að kenna. Ég mun kenna tilvonandi business-nemum verklega vistfræði og mun það án efa reynast mikil þolraun en sjálfsagt skemmtilegt einnig. Í fyrsta tímanum læra þau að nota smásjá. Stuð.
Annars er maður að tækla skrifræðið hér smátt og smátt. Mér tókst að opna bankareikning í vikunni og einnig keypti ég mér ýmsar nauðsynjar eins og sæng, pönnu og pott (sem olli nær stórbruna þegar ég gleymdi að taka límmiðann neðan af honum áður en ég skellti honum á logandi gashelluna - ég tók ekki eftir neinu fyrr en reykskynjarinn fór í gang og ég lýg ekki þegar ég segi að fyrir utan hið eðlilega píp þá kom rödd úr reykskynjaranum sem sagði 'fire' 'fire' endurtekið... óborganlega fyndið, amk svona eftirá). En já, hvar var ég, jú, merkilegustu kaupin voru án efa þau að ég keypti mér gemsa. Það telst svo sem ekki til tíðinda nema það að ég hef átt sama gamla góða Nokia í 5 ár. Geri aðrir betur. Nýji síminn er reyndar líka Nokia en æstur flip-flop með myndavél og hvaðeina. Símakaup þessi þýða auðvitað að ég er kominn með amerískt númer - þeir sem hafa áhuga á að nóta það niður og jafnvel hafa samband, ver so gúd: (1) 347 281 2638.
Á eftir mun ég heimsækja þann fræga stað Coney Island og jafnvel skella mér í eina salibunu í ryðguðum rússíbana.
Kannski koma myndir inn síðar - spurning um framtakssemi vs. leti eins og venjulega.

mánudagur, ágúst 20, 2007
Bloggi Bloggason
Ok hello everybody. Her kemur orstutt New York blogg og tad fyrsta af vonandi morgum. Tvi midur ekki med islenskum stofum tvi ekkert er internetid heima hja mer, amk ekki alveg strax.
En allt gott ad fretta, allt hefur gengid vel. Ibudin er fin, snyrtileg, rumgod og a frabaerums tad. Stigagangurinn er svolitid subbo en tad bara tilheyrir enda byr madur nu i jadrinum a Chinatown. Tad var reyndar rafmagnslaust i ibudinni tegar eg kom a laugardagskvoldid og tad lagadist ekki fyrr en i dag tannig ad eg sa ibudina almennilega fyrst adan !! Alveg fyndid en i ljosinu kom ekkert oged i ljos og eg efast um ad kakkalakkar eda tviumlikt verdi vandama; 7 9 13.
En svo er bara endalaus bjurokrasia vid ad skra sig i skolann en tad virdist nu skipulagt agaetlega, bara timafrekt. Tad verdur to buid adur en madur veit af. Svo byrjar skolinn i naestu viku. TAngad til get eg spigsporad um gotur New York eins og innfaeddur enda finnst varla svalari madur en Snorri Sigurdsson med nyju gleraugun. Hahaha nu verda allir spenntir og heimta mynd af gaejanum og hun kemur kannski sidar tegar tolvustatusinn er betri.
En laet tetta duga, tad er svo stressandi ad vera a netkaffihusi og sja timann hverfa a ljoshrada.
Baejo.